Vélmenni sem líkjast börnum gætu verið notuð til að fræðast um barnaníðinga Kjartan Atli Kjartansson skrifar 18. júlí 2014 17:09 Ron Arkin er prófessor við Georgia Tech.
Á ráðstefnu um siðferðismál sem tengjast vélmennum ræddu sérfræðingar um möguleikann á að búa til sérstök vélmenni sem líktust börnum sem nota mætti í rannsóknarskyni. „Vélmenni sem líkjast börnum mætti nota í rannsóknarskyni. Það væri hægt að nota þau eins og methadone er notað til að trappa fíkla niður,“ segir Ron Arkin, prófessor við Georgia Tech háskólann í Bandaríkjunum í samtali við blaðamann Forbes. Arkin tekur það skýrt fram að hann sé eingöngu hlyntur notkun slíkra vélmenna í þeim tilgangi að rannsaka betur hegðun barnaníðinga og vill nýta tæknina til að gera samfélagið öruggara. Spurningar um siðferði vakna þegar hugmynd Arkin er skoðuð nánars. Ryan Calo, prófessor í lögfræði við Háskólann í Washington, telur að slík vélmenni gætu verið lögleg í Bandaríkjunum. Hann benti á úrskurði Hæstarétts í Bandaríkjunum. Árið 2002 féll úrskurður í máli sem tengdist tölvugerðu barnaklámi (e. Virtual child porn), þar sem myndum af konum var breytt í tölvu til þess að láta þær líta út fyrir að vera af stúlkum. Hæstiréttur taldi að ekki væri hægt að dæma menn sem áttu slíkar myndir fyrir vörslu barnakláms. Calo telur því að það gæti talist löglegt að eiga vélmenni sem liti út eins og barn með það fyrir augum að nota í kynferðislegum athöfnum, eins og lögin eru nú. Í Kanada gilda strangari lög um mál af þessu tagi. Í fyrra var 48 ára gamall maður handtekinn fyrir að panta sér kynlífsdúkku á netinu sem leit út eins og barn. Hann var handtekinn og ákærður fyrir vörslu barnakláms. Maðurinn fer fyrir rétt í næsta mánuði. Vefsíðan International Business Times fjallar einnig um málið. Þar kemur fram að kynlífsdúkkur eru löglegar í Bretlandi, ef sá sem kaupir er eldri en 18 ára gamall. Engin lög eru í landinu sem ná yfir kynlífsdúkkur sem líta út eins og börn. Í umfjölluninni er vitnað í Ben Way, sem hefur skrifað bók um vélmenni og framtíðarhlutverk þeirra í mannlegu samfélagi. Hann er viss um að vélmenni, eins og Arkin fjallar um, verði til í framtíðinni. „Það er enginn vafi á því að kynlífsvélmenni verða til í framtíðinni. Ég held að það sé ógjörningur að stýra því hvaða vélmenni teljast til fullorðinna og hvaða vélmenni teljast til barna. Munu einhverjir fá útrás fyrir ógeðslegum kynferðislegum löngunum sínum? Alveg pottþétt. En ég held að við það muni þeim sem misnota börn fækka,“ segir hann.
Mest lesið „Ég er hreinlega mjög hrædd“ Innlent Hætti í flokknum eftir samtal Ingu Sæland við eiginkonuna Innlent Koma af fjöllum varðandi áform borgarinnar Innlent Spreyttu þig á PISA-spurningunum Innlent Þriggja ára fangelsi fyrir að frelsissvipta æskuvin sinn Innlent Uppsagnir hjá dómsmálaráðuneytinu Innlent Lögreglan leitar tveggja drengja frá Borgarnesi Innlent Hjólahvíslarinn og lögreglan björguðu Latabæ Innlent Salurinn veltist um af hlátri þegar vitni hringdi inn frá Albaníu Innlent Trúfélögin hafi greinilega ekki fylgst með innhólfinu Innlent Fleiri fréttir Rússar kjósa sér 450 skoðanabræður Rússar hafi skipulagt fjölþáttaárás gegn Póllandi Vill fara með Svíþjóð í nýja átt Telja Bandaríkjamenn kunna að hafa framið stríðsglæpi í Íran Kristersson sagði af sér eftir að öll atkvæði voru talin „Þetta snýst um fullveldi“ Þvertaka fyrir að Karl hafi sagt að Díana myndi gleymast fljótt Sænskur stórglæpon handsamaður í Marokkó Samþykktu frumvarp Grahams einu og hálfu ári seinna Hótar háum tollum og að hætta viðskiptum við ESB Varði breytingar á reglum um ráðningar og dýraníð Krefst þess með hástöfum að stýrivextir verði lækkaðir Nær hundrað prósent líkur á sigri vinstri blokkarinnar Kostaði 57 milljarða að verjast einni árás Hútar skutu niður herþotu Sáda Ný réttarhöld gætu reynst flókin í framkvæmd Afhjúpa RIS-vanda í Evrópu og Bandaríkjunum Býður Kanada aukaaðild að Evrópusambandinu Fréttaþyrla NBC hrapaði í Los Angeles Áfram gengur að stoppa upp í ósongatið Loka Kennedy-miðstöðinni eftir að Trump fékk ekki nafn sitt á bygginguna Myndu rústa Póllandi á tveimur til þremur dögum Skutu vegna „ögrandi hegðunar“ dönsku herþyrlunnar Hægt hefði verið koma í veg fyrir dauðsföll barna á sjúkrahúsi Letby Eitt alræmdasta sakamál Ástralíu: Raðmorðingja sleppt úr fangelsi Nemandi alvarlega særður í stunguárás í skóla í Osló Lýsti yfir samkomulagi sem lá ekki fyrir Rússneskt skip skaut blysum að danskri herþyrlu Hafna viðræðum til hægri Úrskurður Hæstaréttar bakslag fyrir Trump Sjá meira