Juncker vill ná fram sanngjörnu samkomulagi fyrir Breta Atli Ísleifsson skrifar 9. júlí 2014 16:03 Juncker undirbýr nú að taka við starfi framkvæmdastjórnar ESB af José Manuel Barroso síðar á árinu. Vísir/AFP
Jean-Claude Juncker, verðandi forseti framkvæmdastjórnar ESB, hafnar því að vera sambandsríkjasinni og segist vilja vinna að sanngjörnu samkomulagi fyrir Breta vegna aðildar þeirra að sambandinu. Juncker undirbýr nú framkvæmdastjórnartíð sína í Brussel, en hann mun að óbreyttu taka við embættinu af José Manuel Barroso síðar á árinu. Evrópuþingið mun kjósa um Juncker á mánudaginn, en hann var tilnefndur af leiðtogaráðinu í lok síðasta mánaðar. Á vef EU Observer segir að Juncker hafi rætt við Evrópuþingmenn úr hópi íhaldsmanna (ECR) í gær, en hópurinn er nú sá þriðji stærsti á Evrópuþinginu að loknum kosningum sem fram fóru í maí síðastliðnum. Á Juncker að hafa sagt þeim að hann styðji gerð samkomulags varðandi hagnýt atriði þar sem tillit yrði tekið til krafna Breta, en þingmenn ECR eru efasemdarmenn um Evrópusamrunann. Breskir stjórnmálamenn og fjölmiðlar hafa dregið upp mynd af Juncker sem ofstækisfullum sambandsríkjasinna og kallaði The Sun hann meðal annars „hættulegasta mann Evrópu“.Stórt í stórum málum, smátt í smáum málum Lúxemborgarinn segist þó að það eigi alls ekki að líta á hann sem einhvern „skúrk“. Segir hann það einfaldlega ekki mögulegt að ná fram markmiðum Evrópu án þess að vera með aðildarríkin með sér í liði. „Þjóðir eru ekki tímabundin uppfinning í mannkynssögunni. Þær eru varanlegar. Ég vil ekki að mér sé lýst sem einhverjum „erki-sambandsríkjasinna““. Segist hann ekki einu sinni skilja hvað sé átt við með slíku. „Sem ríkisborgari smáþjóðar veit ég fullvel um hvað þjóðir snúast og mikilvægi þeirra.“ Juncker segir að hann vilji að Evrópa sé „stórt í stórum málum og smátt í smáum málum“. Þetta rímar vel við orðræðu Davids Cameron, forsætisráðherra Bretlands, sem segist vilja koma ákveðnum völdum ESB aftur til aðildarríkjanna fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu um ESB-aðild Bretlands sem fyrirhuguð er árið 2017, nái Cameron endurkjöri í þingkosningum á næsta ári.
Mest lesið „Ég er hreinlega mjög hrædd“ Innlent Hætti í flokknum eftir samtal Ingu Sæland við eiginkonuna Innlent Koma af fjöllum varðandi áform borgarinnar Innlent Spreyttu þig á PISA-spurningunum Innlent Þriggja ára fangelsi fyrir að frelsissvipta æskuvin sinn Innlent Uppsagnir hjá dómsmálaráðuneytinu Innlent Lögreglan leitar tveggja drengja frá Borgarnesi Innlent Hjólahvíslarinn og lögreglan björguðu Latabæ Innlent Salurinn veltist um af hlátri þegar vitni hringdi inn frá Albaníu Innlent Trúfélögin hafi greinilega ekki fylgst með innhólfinu Innlent Fleiri fréttir Rússar kjósa sér 450 skoðanabræður Rússar hafi skipulagt fjölþáttaárás gegn Póllandi Vill fara með Svíþjóð í nýja átt Telja Bandaríkjamenn kunna að hafa framið stríðsglæpi í Íran Kristersson sagði af sér eftir að öll atkvæði voru talin „Þetta snýst um fullveldi“ Þvertaka fyrir að Karl hafi sagt að Díana myndi gleymast fljótt Sænskur stórglæpon handsamaður í Marokkó Samþykktu frumvarp Grahams einu og hálfu ári seinna Hótar háum tollum og að hætta viðskiptum við ESB Varði breytingar á reglum um ráðningar og dýraníð Krefst þess með hástöfum að stýrivextir verði lækkaðir Nær hundrað prósent líkur á sigri vinstri blokkarinnar Kostaði 57 milljarða að verjast einni árás Hútar skutu niður herþotu Sáda Ný réttarhöld gætu reynst flókin í framkvæmd Afhjúpa RIS-vanda í Evrópu og Bandaríkjunum Býður Kanada aukaaðild að Evrópusambandinu Fréttaþyrla NBC hrapaði í Los Angeles Áfram gengur að stoppa upp í ósongatið Loka Kennedy-miðstöðinni eftir að Trump fékk ekki nafn sitt á bygginguna Myndu rústa Póllandi á tveimur til þremur dögum Skutu vegna „ögrandi hegðunar“ dönsku herþyrlunnar Hægt hefði verið koma í veg fyrir dauðsföll barna á sjúkrahúsi Letby Eitt alræmdasta sakamál Ástralíu: Raðmorðingja sleppt úr fangelsi Nemandi alvarlega særður í stunguárás í skóla í Osló Lýsti yfir samkomulagi sem lá ekki fyrir Rússneskt skip skaut blysum að danskri herþyrlu Hafna viðræðum til hægri Úrskurður Hæstaréttar bakslag fyrir Trump Sjá meira