Kim Jong-un ósáttur við veðurfræðinga vegna þurrka í landinu Kjartan Atli Kjartansson skrifar 12. júní 2014 12:57 Leiðtoginn lét veðurfræðinga fá það óþvegið.
Kim Jong-un, leiðtogi Norður-Kóreu, er ósáttur við veðurfræðingana í landinu. Hann heimsótti opinbera veðurstofu landsins fyrr í dag og skammaði þá fyrir ónákvæmar spár. Og ef reynt er að ráða enn frekar í orð hans virðist hann einnig ósattur við slæmt veður í landinu. Hann sagði góða spá nauðsynlega „til að vernda eignir og líf fólksins í landinu og verja það fyrir náttúruhamförum sem skapast vegna veðurs.“ Kim Jong-un er duglegur að heimasækja hinar ýmsu stofnanir. Þessar heimsóknir hans eru kallaðar „leiðbeinandi heimsóknir“. Leiðtoginn leggur þá fagfólki línurnar og segir því hvernig hann vilji hafa hlutina. Þó er sjaldgæft að hann lýsi yfir óánægju sinni með stofnanir, fyrirtæki eða starfsfólk eins og hann gerði í morgun. Síðasta heimsókn hans var til dæmis í verksmiðju sem framleiðir vatnsrennibrautir. Leiðtoginn var ákaflega ánægður með þá verksmiðju og sagði hana vera sönnun þess að allt væri hægt í Norður-Kóreu. Nú eru rétt um tvö ár síðan leiðtoginn var síðast óánægður í „leiðbeinandi heimsókn“. Þá kíkti hann í skemmtigarðinn í Pyongyang . Honum fannst garðurinn ekki nógu skemmtilegur og lét þá skoðun í ljós í opinbera dagblaðinu í Norður-Kóreu, Rodong Sinmun. Miklir þurrkar hafa geysað í landinu á árinu. Í síðasta mánuði var sagt frá því að nokkur þúsund hektarar af ræktunarlandi hefðu skemmst í þurrkum. Febrúarmánuður á þessu ári var sá þurrasti síðan mælingar hófust og hefur veðrið haft áhrif á hveiti- og kartöfluuppskeru landsins, svo eitthvað sé nefnt. Leiðtoginn er ekki sáttur með það.
Mest lesið Hóteláform Hreiðars strand vegna vegleysu Innlent Flaug hvorki með gömlu né nýju Air Force One Erlent Dregur enn frekar úr líkum á samningi með skaðabótakröfu Erlent Ungir Miðflokksmenn vildu ekki taka þátt í Gleðigöngunni Innlent Fylgdust með rússneskum njósnara gefa útsendara gjöf Erlent Gæsluvarðhalds krafist yfir þriðja manninum Innlent „Einfaldlega ók bifreið frá punkti A á punkt B“ Innlent ,,Þetta eru kosningaherferðarfundir Kristrúnar Frostadóttur fyrir Já til að sjá'' Innlent Ætlar að hafa lokað þrátt fyrir tífaldan íbúafjölda Innlent Aðallega „karlar að drepa aðra karla“ Innlent Fleiri fréttir Réttað yfir fyrrverandi glæpaforingja vegna morðsins á Tupac Flaug hvorki með gömlu né nýju Air Force One Dregur enn frekar úr líkum á samningi með skaðabótakröfu Fylgdust með rússneskum njósnara gefa útsendara gjöf Tala látinna komin yfir hundrað Brutu reglur þegar þau tilkynntu óvart andlát konungsins Harður jarðskjálfti skók Kólumbíu og Ekvador Mannfall í drónaárás á olíuhreinsistöð í Tatarstan Frederiksen og Meloni taka höndum saman gegn innflytjendum Heitustu sumarmánuðir í Vestur-Evrópu í sögunni Ætlar að láta frysta egg sín og útilokar ekki forsetaframboð Segir allt að 50 þúsund hermenn frá Norður-Kóreu á leið til Rússlands Handtekinn eftir að kona og barn drukknuðu við Frelsissyttuna Netanjahú hafnar friðaráætlun Trumps Ríflega hundrað og sextíu ungmenni handtekin Forstjórinn ræður hvort upptökur úr búkmyndavélum verði birtar Gefur aftur í skyn að hann vilji embættið á ný Rússar taldir bera ábyrgð á sjálfsprengjudrónanum Heitir því að herða byssulöggjöf í kjölfar árásar Spánverjar taka upp landamæraeftirlit gagnvart Ítalíu Blanche staðfestur sem dómsmálaráðherra Sonur Bidens segir náðunina ekki góða ákvörðun Kampavínið klárt þegar hann beið eftir að morðingjar létu til skarar skríða Gert að greiða tugi milljarða fyrir að passa ekki öryggi barna Sjö látnir eftir skotárás í grunnskóla Biður fjársterka stuðningsmenn um að styðja Vance 2028 Íranir segja viðræður á lokametrunum Vísa máli Fauci til dómstóla Sakar lekamenn um landráð vegna „rangra“ frétta „Fagmenn“ smíðuðu og flugu sjálfsprengidrónanum í Leipzig Sjá meira