Fjölmiðlar ytra fjalla um mosku í Reykjavík 13. júní 2014 07:00 Höfuðstöðvar breska ríkisútvarpsins. vísir/afp
Þær deilur sem staðið hafa um byggingu mosku í Reykjavík hafa vakið mikla athygli í fjölmiðlum ytra. Í liðinni viku birti fréttamiðillinn Vice umfjöllun um deilurnar sem staðið hafa yfir og nú síðast, eða í gærkvöld, var það breska ríkisútvarpið, BBC. Í frétt BBC er vitnað í viðtal Iceland Review við Salmann Tamimi, trúarleiðtoga múslima á Íslandi, þar sem hann segist hafa fengið fjöldann allan af tölvupóstum frá fólki sem vill vita hvernig hægt sé að skrá sig í Félag múslima á Íslandi. Þá er jafnframt vakin athygli á Facebook færsluGunnars Smára Egilssonar, fyrrverandi ritstjóra Fréttablaðsins. Þar sem Gunnar Smári hefur hingað til ekki verið skráður í trúfélag hefur sóknargjöldum hans verið ráðstafað af fjárlaganefnd Alþingis, og velti hann því fyrir sér að ganga í Félag múslima á Íslandi í hálfgerðu mótmælaskyni við Framsóknarflokkinn, en eins og kunnugt er, er Vigdís Hauksdóttir, framsóknarkona, formaður fjárlaganefndar. Ef marka má nýjustu Facebook færslu Gunnars Smára, þá er hann nú skráður í Félag múslima á Íslandi. Þá er sagt að Framsóknarflokkurinn hafi verið sakaður um útlendingahatur og er vitnað í forsætisráðherra, sem þar er kallaður David Gunnlaugsson, þar sem hann vísar ásökunum á bug og segist einungis vilja opna umræðu um þessi málefni.
Mest lesið Þorvaldur gagnrýndur fyrir órökstudda spá um eldgos Innlent Netþrjótar herja á „mömmur“ landsins Innlent Tugir drukknuðu og margra enn saknað Erlent Demókratar flýja Texas svo þing geti ekki komið saman Erlent Annar leikarinn sem tekur eigið líf eftir ölvunarakstur Erlent Elskar auglýsingarnar með Sweeney fyrst hún er Repúblikani Erlent Hvalur skaut upp höfði upp við bryggjuna: „Þetta var alveg magnað“ Innlent Fimm líkamsárásir í Vestmannaeyjum Innlent Bónus og Prís virða frídag verslunarmanna en aðrir ekki Innlent Fyrrverandi ísraelskir foringjar biðla til Trump að ljúka stríðinu Erlent Fleiri fréttir Annar leikarinn sem tekur eigið líf eftir ölvunarakstur Elskar auglýsingarnar með Sweeney fyrst hún er Repúblikani Tæplega þrjátíu drepin á meðan þau biðu eftir mat Fyrrverandi ísraelskir foringjar biðla til Trump að ljúka stríðinu Tugir drukknuðu og margra enn saknað Demókratar flýja Texas svo þing geti ekki komið saman Hamas til í að gefa gíslum hjálpargögn ef Ísrael hleypir þeim inn á svæðið Maður lést eftir fall af svölum á tónleikum Oasis Rússneskt eldfjall gýs í fyrsta sinn í sex hundruð ár Segir „erfiðara“ að náða Diddy eftir „hræðilegar yfirlýsingar“ Leiddi fordæmalausa bænastund á Musterishæð Eldur í olíugeymslu í Sochi eftir drónaárás Reiður Trump segir Schumer að fara til helvítis Grunaður um að myrða heila fjölskyldu en skilja ungabarnið eftir á lífi Beinaber gísl látinn grafa eigin gröf á Gasa Að bugast á hálf nöktum ferðamönnum og beita sektum „Fordæmalaus hitabylgja“ leikur Skandínava grátt Maxwell flutt í þægilegra fangelsi Breyti engu á jörðu niðri að viðurkenna sjálfstæði Palestínu Trump ræsir út kjarnorkukafbáta eftir „ögrandi“ ummæli Rússa „Clinton áætlunin“ líklega tilbúningur rússneskra njósnara „Ekki taka. Endurheimta. Þetta er okkar“ Arabaríkin sameinast um afvopnun Hamas og fordæmingu á árásunum 7. október Bukele ryður leiðina að einræði í El Salvador Freista þess að hindra að Bandaríkin fargi miklu magni getnaðarvarna Hvatti ríki til að stuðla að stjórnarskiptum í Rússlandi Tollar á vörur frá Íslandi verða 15 prósent samkvæmt forsetatilskipun Leynilega geimfarið sent á sporbraut í áttunda sinn Samþykkja ný lög um spillingarrannsóknir eftir mótmæli Múhameð eykur forskotið og enginn nefndur Keir Sjá meira