Fótbolti

Altidore eyðilagður vegna meiðslanna

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Jozy Altidore tognaði líklega í gær.
Jozy Altidore tognaði líklega í gær. Vísir/Getty
Óvíst er hvort að Jozy Altidore geti spilað meira með bandaríska landsliðinu á HM í Brasilíu.

Altidore virtist togna aftan í læri snemma leiks gegn Gana í gær en Aron Jóhannsson kom inn á sem varamaður fyrir hann.

„Ég tók sprett og fann fyrir einhverju. Við verðum að sjá til um framhaldið,“ sagði Altidore við fjölmiðla eftir leikinn í gær. „Ég var í molum. Ég vissi um leið að ég gæti ekki haldið áfram. Þetta var ömurleg tilfinning.“

Clint Dempsey skoraði fyrra mark Bandaríkjanna í 2-1 sigri eftir aðeins 31 sekúndu en hann nefbrotnaði síðar í leiknum.

„Ég átti erfitt með að anda og var að hósta blóði. En ég næ vonandi að anda aftur í gegnum nefið fyrir næsta leik,“ sagði Dempsey en landsliðsþjálfarinn Jürgen Klinsmann hafði ekki miklar áhyggjur af málinu.

„Ég nefbrotnaði þrisvar eða fjórum sinnum sjálfur og þetta er ekkert stórmál. Við gefum honum nokkra daga til að jafna sig.“


Tengdar fréttir

Aron spilaði og Bandaríkin lögðu Gana

Aron Jóhannsson fagnaði sigri í sínum fyrsta leik á HM í kvöld. Bandaríkin lögðu þá Gana, 2-1, en sigurinn var ekki beint sanngjarn. Aron kom af bekknum á 23. mínútu.

Howard hrósaði Aroni í hástert

Tim Howard, landsliðsmarkvörður Bandaríkjanna, var ánægður með innkomu Arons Jóhannssonar í sigrinum á Gana á HM í Brasilíu í gær.

Aron stoltur af bandaríska liðinu

Aron Jóhannsson segist vera stoltur af samherjum sínum í bandaríska landsliðinu eftir 2-1 sigur liðsins á Ganverjum á HM í gær.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×