Miklar öryggisráðstafanir vegna forsetakosninga Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 3. júní 2014 10:47 Talið er nær öruggt að sitjandi forseti Sýrlands, Bashar al-Assad, muni bera sigur úr býtum vísir/afp
Miklar öryggisráðstafanir hafa verið gerðar vegna forsetakosninganna í Sýrlandi, en kjörstaðir opnuðu snemma í morgun. Einungis er kosið í þeim hlutum Sýrlands sem stjórnarherinn ræður, og kosið er til sjö ára. Stjórnarandstæðingar telja að stjórnarherinn áformi árásir á kjörstaði og ætli að koma sökinni á andstæðinga sína. Þá hafa uppreisnarmenn hótað því að trufla kosningarnar. Talið er nær öruggt að sitjandi forseti Sýrlands, Bashar al-Assad, muni bera sigur úr býtum þrátt fyrir að tveir aðrir, Maher Hajjar og Hassan al-Nouri, séu í framboði. Andstæðingar hans ætla ekki að taka þátt og fullyrða að úrslitum verði hvort eð er hagrætt. Undir þetta taka mörg vestræn ríki en þetta mun vera í fyrsta sinn í áratugi sem fleiri en eitt nafn er á kjörseðlinum. Sýrlendingar hafa raunar ekki verið þekktir fyrir að halda frjálsar kosningar og þegar Assad tók við af föður sínum, sem komst til valda fyrir fjórtán árum, fékk hann 99 prósent atkvæða. Faðir hans, alavíski herforinginn Hafez- al-Assad, var við völd í Sýrlandi í 29 ár. Kosningarnar fara fram í miðju borgarastríði, sem staðið hefur yfir í um þrjú ár. Talið er að 125 þúsund manns hafi látið lífið í átökunum og hafa meira en tvær milljónir flúið heimili sín. Ástandið er slæmt og óttast Sameinuðu þjóðirnar að hungursneið sé yfirvofandi. Kjörstaðir eru hátt í tíu þúsund og rúmlega 15 milljónir manna eru á kjörskrá.
Mest lesið Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Innlent Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Innlent Lögregluaðgerð á Laugavegi Innlent Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Innlent „Ekki í lífshættu“ Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent „Hvað hafa þau að fela?“ Innlent Fleiri fréttir Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skothvellir við Hvíta húsið Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Mjakist nær samkomulagi Kratar fá umboðið á ný og hyggja á miðjuvinstri stjórn Níutíu látnir eftir sprengingu í kolanámu Spjallað í Reykjavík á meðan drónarnir dynja á Kænugarði Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Vilja skipa erindreka en vita ekki hvert erindið er Borgaraleg stjórn virðist úr sögunni Rutte segir ríka Evrópu reiða sig um of á Bandaríkin Birta loks umdeilda „krufningu“ á framboði Harris Stjórnvöld í Íran og Óman ræða sameiginlega gjaldheimtu á sundinu Útvegaði njósnurum gögn um óvini Rússa Íbúar í Alberta greiða atkvæði um aðskilnað frá Kanada Trump sendir 5.000 hermenn til Póllands Veit ekki hvort hann hafi misst tökin á öldungadeildinni Bein útsending: Nýsköpunarverðlaun Norðurlandanna Hugmyndir kjósenda um innflytjendur ekki í takt við raunveruleikann Ellefu Evrópuríki auglýsa eftir hættulegum dæmdum glæpamönnum Ben-Gvir fordæmdur fyrir framkomu sína gagnvart aðgerðasinnum Raúl Castro ákærður fyrir morð í Bandaríkjunum Trump segist munu ræða við forseta Taívan Hafa þurft að draga verulega úr olíuframleiðslu vegna árása Sat inni í 37 daga fyrir að grínast með morðið á Kirk Lögreglumenn vilja stöðva skaðabótasjóð Trumps Jarðskjálfti skók Kaupmannahöfn Segir samstarf Kína og Rússlands stuðla að stöðugleika í heiminum Hugðust frelsa Ahmadinejad og koma honum til valda Sjá meira