Múslimi brást við fordómum með því að redda heimilislausum manni vinnu Kjartan Atli Kjartansson skrifar 3. júní 2014 11:51 Hér eru þeir félagarnir. Chowdhury til vinstri og Gallon til hægri.
Þegar heimilislaus maður kallaði fordómafull skilaboð að múslimanum Aminur Chowdhury, frá Bradford á Englandi, ákvað hann að ræða málin. Heimilslaus maður að nafni Ben Gallon fordæmdi Chowdbury fyrir trúarskoðanir hans og kallaði að honum ókvæðisorð þegar þeir mættust. Í staðinn fyrir að hrópa á manninn til baka ákvað Chowdhury að bjóða manninum upp á bjór. „Ég vildi bara ræða málin við hann. Við spjölluðum í gott korter,“ útskýrir hann. Spjall þeirra endaði með því að Chowdhury tók niður upplýsingarnar um hinn heimilislausa Gallon. Chowdhury vildi hjálpa honum að finna vinnu og komast á fætur. Gallon fékk svo símtal daginn eftir. „Ég hélt að hann væri bara að vera kurteis þegar hann sagðist vilja hjálpa mér að finna vinnu. En svo hringdi hann daginn eftir og bauðst til að sækja mig og skutla mér í atvinnuviðtal. Hann kom og sótti mig og fór með mér í viðtalið. Tíu mínútum seinna var ég kominn með vinnu.“ Og Chowdhury fannst ekki nóg að redda Gallon vinnu. Hann hjálpaði Gallon að finna íbúð með viðráðanlegu leiguverði. Gallon sér eftir þessum fordómafullu köllum. „Ég hef lært mína lexíu. Það var einfaldlega ekkert sem réttlætti þetta sem ég sagði. Og Aminur á heiður skilinn að hafa tekið þessu svona. Þetta sem ég sagði endurspeglaði ekki mínar skoðanir í raun og veru, því ég veit að innst inni er ég ekki rasisti. Aminur hefur hjálpað mér að komast af stað í lífinu og allt er á uppleið. Þetta er stórkostlegt,“ segir Gallon. Chowdhury segir að þetta sé langbesta leiðin til þess að takast á við fordóma; að sýna fólki þolinmæði og ræða málin. „Ég trúi því að ef maður bregst við fordómum með því að sýna fólki umhyggju og alúð fái maður það sama margfalt tilbaka. Eina leiðin að takast á við fordóma er að sýna umburðarlyndi og fara ekki niður á sama plan og hinir. Ég get ekki sagt fólki hvaða skoðanir það á að hafa, en ég get átt minn þátt í að upplýsa það,“ útskýrir hann.
Mest lesið Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Innlent Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Innlent Lögregluaðgerð á Laugavegi Innlent Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Innlent „Aulalegasti bófinn í bænum“ Innlent Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Innlent Stígur fram sem „alræmdur faðir“ í Vesturbænum Innlent Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Innlent Fleiri fréttir Trump vill ekki flýta sér Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skothvellir við Hvíta húsið Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Mjakist nær samkomulagi Kratar fá umboðið á ný og hyggja á miðjuvinstri stjórn Níutíu látnir eftir sprengingu í kolanámu Spjallað í Reykjavík á meðan drónarnir dynja á Kænugarði Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Vilja skipa erindreka en vita ekki hvert erindið er Borgaraleg stjórn virðist úr sögunni Rutte segir ríka Evrópu reiða sig um of á Bandaríkin Birta loks umdeilda „krufningu“ á framboði Harris Stjórnvöld í Íran og Óman ræða sameiginlega gjaldheimtu á sundinu Útvegaði njósnurum gögn um óvini Rússa Íbúar í Alberta greiða atkvæði um aðskilnað frá Kanada Trump sendir 5.000 hermenn til Póllands Veit ekki hvort hann hafi misst tökin á öldungadeildinni Bein útsending: Nýsköpunarverðlaun Norðurlandanna Hugmyndir kjósenda um innflytjendur ekki í takt við raunveruleikann Ellefu Evrópuríki auglýsa eftir hættulegum dæmdum glæpamönnum Ben-Gvir fordæmdur fyrir framkomu sína gagnvart aðgerðasinnum Raúl Castro ákærður fyrir morð í Bandaríkjunum Trump segist munu ræða við forseta Taívan Hafa þurft að draga verulega úr olíuframleiðslu vegna árása Sat inni í 37 daga fyrir að grínast með morðið á Kirk Lögreglumenn vilja stöðva skaðabótasjóð Trumps Jarðskjálfti skók Kaupmannahöfn Segir samstarf Kína og Rússlands stuðla að stöðugleika í heiminum Sjá meira