Kínverjar láta hart mæta hörðu Stefán Ó. Jónsson skrifar 9. júní 2014 15:16 Heræfing í Xinjiang-héraði. Visir/afp
Kínversk stjórnvöld hafa dæmt níu manns til dauða fyrir aðild sína að hryðjuverkaárásum í Xinjiang-héraði í vesturhluta landsins.The Guardian greinir frá þessu.Aðrir 72 hafa verið dæmdir til vægari refsinga og 29 kínverjar handteknir í viðamiklum aðgerðum þarlendra yfirvalda. Markmið þeirra er að hafa hendur í hári ódæðismannanna sem urðu 43 að bana í sprengjuárás þann 22. maí síðastliðinn. Á þeim 15 mánuðum sem Xi Jinping hefur verið forseti Kína hafa átt sér stað fjórar hryðuverkaárásir í landinu og er mikill þrýstingur á ríkisstjórn Jinpings að stemma stigu við vargöldinni sem ríkt hefur Kína á undanförnum misserum. Undir lok aprílmánaðar varð sjálfsmorðssprengjuárás tveimur að bana í lestarstöð í Ürümqi, í mars voru 29 kínverjar skornir og stungnir til bana á lestarstöð í Kunming og í október á síðasta ári keyrðu þrír menn sendiferðabíl í gegnum hóp fólks við Torg hins himneska friðar sem dró tvo ferðamenn til dauða. Kínversk stjórnvöld takmarka gífurlega upplýsingaflæðið frá Xinjang-héraði og því hefur blaðamönnum og óháðum rannsakendum reynst þrautin þyngri að staðfesta þær fregnir sem berast þaðan. Ekki hefur því fengist endanlega úr því skorið hvort ódæðismennirnir séu íslamskir aðskilnaðarsinnar eins og þarlend yfirvöld hafa haldið fram.
Mest lesið Stungumanni í Bankastrætismálinu aftur stungið í steininn Innlent Farþegar látnir sofa á gólfinu á hóteli í Keflavík Innlent Hátt í tveggja tíma veðmálaauglýsing í boði Rúv Innlent Fjöldi látinn eftir rútuslys í New York Erlent Bíll konunnar sást á upptöku Innlent Sjö ára hlaupari kemur hópnum yfir línuna í sjötta maraþoninu á morgun Innlent „Versti tíminn, allra versti tíminn“ Innlent Gamall þristur strand vegna skorts á bensíni Innlent Grjóthart nei hjá dúxinum í Yale Innlent Þáttastjórnendum X-sins sagt upp Innlent Fleiri fréttir Fjöldi látinn eftir rútuslys í New York Gerðu húsleit á heimili fyrrverandi þjóðaröryggisráðgjafa Trump Staðfesta hungursneyð á Gasa Thunberg og félagar borin út úr norska seðlabankanum Hótar Hamas með helvíti og gjöreyðingu Gasa-borgar Rússar vilja koma að því að tryggja öryggi Úkraínu Erik Menendez fær ekki reynslulausn Fella niður 64 milljarða sekt Trump Samþykktu ný hagstæðari kjördæmi í Texas Vara við hörmungum verði gert áhlaup á Gasaborg Stefna á fjöldaframleiðslu á eigin stýriflaugum Losun Kína dregst saman vegna uppgangs í sólarorku Líkamlegar refsingar hamla þroska og hafa áhættu í för með sér Handtekinn á Ítalíu vegna Nord Stream sprenginganna Rússar halda árásum áfram Ætla að stoppa farandfólk með svartri málningu Mega neita þeim aðgengi sem bera keffiyeh Hefur áhyggjur af gervigreind sem virðist sjálfsmeðvituð Engir hermenn í Úkraínu og enginn fundur með Pútín Kalla tugi þúsunda til herþjónustu Öflugasti sjónaukinn fann áður óþekkt tungl í sólkerfinu „Stríðin“ sex, stundum sjö, sem Trump segist hafa stöðvað Kirkjan í Kiruna komin á áfangastað Frambjóðandi sem ræddi um morð á hundi farinn í hundana Nýtt flaggskip Rússa á sjó eftir tuttugu og fimm ár í slipp Hondúras og Úganda samþykkja að taka við hælisleitendum Segist vilja komast til himna Ísraelar taki ekki annað í mál en lausn allra gísla Bauð Selenskí til Moskvu Segir ásakanir Evrópu barnalegar Sjá meira