Erlent

Forseti Úkraínu heitir hefndum

Petro Pórósjenkó, nýkjörinn forseti Úkraínu, heitir því að refsa grimmilega þeim sem skutu niður úkraínska herþyrlu í gær með þeim afleiðingum að tólf féllu. Á meðal þeirra sem féllu í árásinni var einn æðsti hershöfðingi úkraínska hersins.

Þyrlan var skotin niður nálægt borginni Slóvíansk í austurhluta landsins þar sem hörð átök hafa verið á milli stjórnarhermanna og aðskilnaðarsinna. Forsetinn kallar aðskilnaðarsinnana glæpamenn sem verði að uppræta sem allra fyrst en þeir hafa fjölmargar stjórnarbyggingar í austurhlutanum enn á sínu valdi og eru vel vopnaðir en þyrlan mun hafa verið skotin niður með háþróaðri loftvarnaeldflaug.

Átökin hafa magnast mikið síðustu daga og á mánudag féllu tugir aðskilnaðarsinna í bardaga við flugvöllinn í Dónetsk. Rússar hafa ítrekað þá kröfu sína að stjórnin í Kænugarði láti þegar af öllum hernaðaraðgerðum í austurhéruðunum og hefji þess í stað friðarviðræður. Úkraínumenn saka Rússa hinsvegar um að styðja uppreisnarmennina og leggja þeim til vopn en Rússnesk stjórnvöld neita því staðfastlega.

Leiðtogi aðskilnaðarsinna í Dónetsk, Alexander Borodai sagði í viðtali við rússneska sjónvarpsstöð að þeir séu tilbúnir í friðarviðræður, að því gefnu að úkraínustjórn láti af hernaðaraðgerðum sínum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×