Erlent

Straumur flóttamanna til Evrópu eykst

Vísir/AFP
Mikil aukning hefur verið í komu flóttamanna til landa Evrópusambandsins frá áramótum. Flestir eru að flýja borgarastyrjöldina í Sýrlandi. Frá áramótum og fram í apríl hafa um sextíu þúsund manns freistað þess að komast með ólöglegum hætti til evrópu.

Þetta kemur fram í tölum sem Frontex, landamærastofnun Evrópu heldur utan um en BBC greinir frá málinu. Talið er að þriðjungur flóttafólksins komi frá Sýrlandi þar sem harðvítug borgarastyrjöld hefur hrakið um þrjár milljónir manna frá heimilum sínum. Flestir reyna að komast frá Norður-Afríku og yfir til Ítalíu en á tímabilinu hafa um 42 þúsund manns reynt að ná til Evrópustranda.

Flestir reyna að sigla frá Líbíu og hafa fjölmargir beðið bana í þeim tilraunum. Ítalía er aðal áfangastaður þessa fólks og frá áramótum hafa 39 þúsund manns komið þangað. Flóttamannastraumurinn á þessu ári er meiri en á sama tímabili árið 2011 þegar arabíska vorið stóð sem hæst og flóttamönnum fjölgaði mikið.

Á því ári nam heildarfjöldinn 140 þúsundum en ef áfram fer sem horfir á þessu ári mun sambærileg tala verða töluvert hærri en það. Nú er sumarið að ganga í garð og sagan sýnir að flóttamönnum fjölgar á því tímabili.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×