Januzaj spilaði sinn fyrsta leik fyrir Belga Tómas Þór Þórðarson skrifar 26. maí 2014 20:38 Adnan Januzaj hefur farið langt á stuttum tíma. Vísir/getty
Romelu Lukaku, framherji Chelsea sem var á láni hjá Everton í ensku úrvalsdeildinni í vetur, skoraði þrennu í auðveldum 5-1 sigri Belgíu gegn Lúxemborg í vináttulandsleik í Genk í kvöld. Lukaku kom heimamönnum yfir strax á þriðju mínútu en gestirnir jöfnuðu nokkuð óvænt tíu mínútum síðar, 1-1. Framherjinn kraftmikli bætt við öðru marki á 23. mínútu og því þriðja á 54. mínútu áður en hann var tekinn af velli.Nacer Chadli, leikmaður Tottenham, kom Belgum í 4-1 með marki á 71. mínútu og Kevinde Bruyne innsiglaði sigurinn, 5-1, með marki úr vítaspyrnu einni mínútu fyrir lok venjulegs leiktíma.Adnan Januzaj, ungstirnið í röðum Manchester United, spilaði sinn fyrsta landsleik fyrir Belgíu í kvöld en hann kom á í hálfleik. Januzaj átti nokkra góða spretti en tókst ekki að skora. Hann lagði upp dauðafæri fyrir samherja inn hjá Man. Utd, Marouane Fellaini, þegar fjórar mínútur voru til leiksloka en sá hárprúði þrumaði yfir af stuttu færi. Januzaj, sem gat valið á milli fjölmargra landsliða, spilaði sinn fyrsta aðalliðssleik fyrir Manchester United í ágúst á síðasta ári þegar hann kom inn á fyrir Robin van Persie í leiknum um Samfélagsskjöldinn. Hann er nú, tíu mánuðum síðar, á leið á HM 2014 en Marc Wilmots, landsliðsþjálfari Belgíu, valdi hann í hópinn sem ferðast til Brasilíu í næsta mánuði. Belgíska liðið er talið líklegt til afreka á HM en í byrjunarliði þess í kvöld voru sjö leikmenn úr ensku úrvalsdeildinni og tveir til viðbótar komu inn á sem varamenn. Alls eru tólf leikmenn úr úrvalsdeildinni ensku í HM-hópnum. Aðeins einn leikmaður sem spilar í heimalandinu var í byrjunarliðinu en það var markvörðurinn SammyBossut, samherji Ólafs Inga Skúlasonar hjá Zulte-Waregem. Aðalmarkvörðurinn Thibaut Cortois fékk lengra frí vegna þátttöku sinnar í úrslitaleik Meistaradeildarinnar á laugardaginn og Simon Mignolet, markvörður Liverpool, sat allan tímann á bekknum.
Fótbolti Mest lesið Mætti þrátt fyrir ráð um annað í skugga ásakana Enski boltinn 16 ára setti vallarmet á Íslandsmótinu Golf Var launahæstur í sögunni í tvo daga Sport Ellefu ensk lið í eldlínunni víðsvegar um heim Enski boltinn Andri Lucas aftur á skotskónum eftir meiðsli Enski boltinn Flottur sigur Íslendingaliðsins í fyrsta leik Fótbolti Spennan meiri í kvennaflokki fyrir lokahringinn Golf Dagskráin í dag: Mansfield og Messa á sunnudegi Sport Drakk síðast vatn í drykkjarhléi úrslitaleiks HM Fótbolti Tap og Hlín fer í Evrópubikarinn Fótbolti Fleiri fréttir Í hóp lufsulegra lánsmanna Liverpool Mætti þrátt fyrir ráð um annað í skugga ásakana Aston Villa hyggst fylla í götin Guðrún úr leik eftir tap fyrir Juventus Ellefu ensk lið í eldlínunni víðsvegar um heim Flottur sigur Íslendingaliðsins í fyrsta leik Tap og Hlín fer í Evrópubikarinn Diljá aftur með tvö og áfram í Meistaradeild Framherjaleit Breiðabliks lokið Andri Lucas aftur á skotskónum eftir meiðsli Þrótti mistókst að fara á toppinn Drakk síðast vatn í drykkjarhléi úrslitaleiks HM Sjö mörk í stórsigri Íslendingaliðsins Grípa í taumana eftir banaslys Lutu í lægra haldi gegn toppliðinu Íslendingaliðið áfram í Evrópubikarinn Erlingur Agnars í FH Jorge Messi látinn Bruno orðinn leikmaður Arsenal: „Ég verð ykkar stríðsmaður“ Sjáðu fernu Emmu og gífurlega mikilvægt mark Vals Martraðardvöl Blika: „Tekið á andlega og líkamlega“ Infantino hafnar ásökunum um þöggunargreiðslu til meintrar ástkonu Nuddari Maradona grátklökkur í réttarsalnum Táningur Manchester United fær 24 karata gullspjald Argentína mun ekki setja pressu á Lionel Messi Ensk landsliðskona vill sniðganga HM Liverpool fær miðvörð Barcelona á láni Haaland tilnefndur til tónlistarverðlauna í Noregi Afturelding á toppinn eftir stórsigur og tap Fylkis Uppgjörið: Valur-Víkingur 1-0 | Fyrsti sigur Vals síðan 25. maí Sjá meira