Ofbeldi landtökumanna hefur aukist Guðsteinn Bjarnason skrifar 15. janúar 2014 10:15 Ísraelskir hermenn taka við landtökumanni úr höndum Palestínumanna við Kúsra. Nordicphotos/AFP
Samkvæmt tölum frá Sameinuðu þjóðunum hefur átökum ísraelskra landtökumanna við Palestínumenn fjölgað jafnt og þétt síðustu átta árin. Ísraelskir ráðamenn hafa ítrekað fordæmt ofbeldi landtökumanna gegn Palestínumönnum, en þvert ofan í yfirlýsingar þeirra virðist þeim ekki hafa tekist að stemma stigu við þessum árásum. Síðan 2006 hafa landtökumenn gert um 2.100 árásir á Palestínumenn, samkvæmt tölum frá OCHA, mannúðarskrifstofu Sameinuðu þjóðanna. Árið 2006 voru 115 slíkar árásir gerðar, en þeim hafði fjölgað í 399 á síðasta ári. Átökin hafa kostað 10 Palestínumenn og 29 landtökumenn lífið síðan 2006. Meira en 1.700 Palestínumenn hafa hlotið meiðsli í átökum við landtökumenn eða ísraelska hermenn sem komið hafa á vettvang, en 324 landtökumenn og 27 hermenn hafa særst í átökum við Palestínumenn. Stundum eru það Palestínumenn sem eiga upptökin að átökum, meðal annars með því að kasta steinum á Ísraelsmenn.Ísraelskir landtökumenn í haldi Palestínumanna á byggingarstað við Kúsra í síðustu viku.Nordicphotos/AFPTil átaka kom í síðustu viku skammt frá bænum Kúsra á Vesturbakkanum, þar sem landtökumenn hafa hreiðrað um sig á stað sem nefnist Esh Kodesh. Samkvæmt frásögn AP fréttastofunnar hófust átökin eftir að ísraelskir hermenn mættu á svæðið og fjarlægðu olíuviðartré, sem landtökumennirnir höfðu gróðursett á landsvæði sem er í eigu Palestínumanna. Síðar um daginn fór um 20 manna hópur ísraelskra landtökumanna um svæðið og eyðilagði olíuviðartré fyrir Palestínumönnum. Til átaka kom, þar sem grjóti var kastað, og lauk þeim átökum með því að hópur Palestínumanna tók landtökumennina höndum og hélt þeim í rúmlega tvær klukkustundir, eða þangað til ísraelski herinn kom á vettvang og handtók landtökumennina. Ísraelsku landtökumennirnir urðu fyrir barsmíðum, en ísraelskir fréttamenn segja að hópi Palestínumanna hafi tekist að verja Ísraelanna gegn frekara ofbeldi. Síðan þetta gerðist hafa ísraelskir landtökumenn á þessum slóðum farið um með ofbeldi, eyðilagt hundruð trjáa í Kusra, drepið 18 kindur, kveikt í sex bifreiðum og kveikt í mosku.
Mest lesið Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Innlent Hvar er opið á aðfangadag? Innlent Kynnti drög að nýrri friðaráætlun Erlent Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Innlent Skiluðu hagnaði á kosningaári Innlent Arion banki varar við svikaherferð Innlent Blússandi hagvöxtur í Bandaríkjunum Erlent Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Innlent Hátíðarveisla á kaffistofu Samhjálpar: „Það er ró og friður yfir fólki“ Innlent Tveir lögreglumenn sprengdir í loft upp Erlent Fleiri fréttir Kynnti drög að nýrri friðaráætlun Tveir lögreglumenn sprengdir í loft upp Blússandi hagvöxtur í Bandaríkjunum Nýjar ákærur á hendur Russell Brand Fleiri Epstein-skjöl birt: Bað um „óviðeigandi vinkonur“ Saka AfD um að ganga erinda Kremlverja Kínverjar og Rússar lýsa yfir stuðningi við Venesúela Skapari Call of Duty lést í bílslysi Trump nefnir nýja kynslóð orrustuskipa í höfuðið á sjálfum sér „Bandaríkin eiga ekki að taka yfir Grænland“ Nýr ritstjóri stöðvaði umfjöllun um brottvísanir Trump Breiddi út faðminn fyrir rasista: „Þið þurfið ekki að biðjast afsökunar á að vera hvít lengur“ Sprengdu rússneskan hershöfðingja í loft upp í Moskvu Undirbúningur árásarinnar stóð yfir í marga mánuði Trump skipar sendifulltrúa fyrir Grænland Segir unnið að því að móta sameiginlega nálgun Bandaríkjanna, Úkraínu og Evrópu Sýknaður af nauðgun eftir að hafa verið skimaður fyrir sjaldgæfri svefnröskun Málið sem Trump getur ekki losað sig við Grunaður um manndráp eftir að tveggja ára drengur féll úr blokk Fóru um borð í vélvana rússneskt skip Baulað á Albanese á minningarathöfn á Bondi-strönd Kvarta yfir ritskoðun Epstein-skjala: „Við vitum ekki hvað við vitum ekki“ Níu skotnir til bana á krá Sextán ára fékk greitt fyrir að færa Epstein stúlkur Ljósmyndir horfnar úr Epstein-skjölunum, þar á meðal ein af Trump Vilja dauðarefsingu af borðinu vegna hagsmunaáreksturs ráðherra Pútín sagður hafa valið Witkoff Gerðu umfangsmiklar árásir gegn ISIS í Sýrlandi Það helsta úr fyrsta skammti Epstein-skjalanna Epstein-skjölin birt Sjá meira