Í ótímabundið fangelsi fyrir gíslatöku á þaki lögreglustöðvar Þorgils Jónsson skrifar 15. janúar 2014 10:45 Mikill viðbúnaður var vegna gíslatökunnar á sínum tíma. Hér sést lögeglumaður á vakt við vegatálma utan við lögreglustöðina. NordicPhotos/AFP
Hálffertugur karlmaður, sem tók ungan samfanga sinn í gíslingu á þaki lögreglustöðvarinnar í Kaupmannahöfn í fyrrasumar, var í morgun dæmdur til ótímabundinnar fangelsisvistar. Politiken segir svo frá. Slíkum úrræðum er beitt þegar viðkomandi er talinn ógn við samfélagið. Það felur í sér fangelsi í þrjú ár hið minnsta, en eftir það verður hann metinn árlega þar til rétturinn telur hann hæfan til að fá frelsi á ný. Maðurinn, sem hefur tengsl við glæpahópinn Bandidos og hafði áður hlotið dóma vegna auðgunarbrota, var sakfelldur fyrir hótanir og frelsissviptingu, sem og árás á tvo fangaverði sem átti sér stað deginum áður. Hann ógnaði yngri fanga á útisvæði á þaki byggingarinnar með heimatilbúnu vopni sem hann hafði gert úr tveimur samanbræddum tannburstum og hélt honum föngnum í fjórar klukkustundir áður en hann gafst upp. Eftir á sagðist maðurinn hafa sviðsett gíslatökuna til að vekja athygli á meintum slæmum aðbúnaði fanga. Hann vísaði fram yfirlýsingu frá fórnarlambinu, þar sem fram kom að það hafi verið með í ráðum, en eftir á sagði yngri maðurinn að hann hafi verið kúgaður til að undirrita það skjal. Hinn sakfelldi áfrýjaði málinu strax.
Mest lesið Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Innlent „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Trump vill ekki flýta sér Erlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Innlent Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent „Ekki í lífshættu“ Innlent Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Innlent Fleiri fréttir Trump vill ekki flýta sér Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skothvellir við Hvíta húsið Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Mjakist nær samkomulagi Kratar fá umboðið á ný og hyggja á miðjuvinstri stjórn Níutíu látnir eftir sprengingu í kolanámu Spjallað í Reykjavík á meðan drónarnir dynja á Kænugarði Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Vilja skipa erindreka en vita ekki hvert erindið er Borgaraleg stjórn virðist úr sögunni Rutte segir ríka Evrópu reiða sig um of á Bandaríkin Birta loks umdeilda „krufningu“ á framboði Harris Stjórnvöld í Íran og Óman ræða sameiginlega gjaldheimtu á sundinu Útvegaði njósnurum gögn um óvini Rússa Íbúar í Alberta greiða atkvæði um aðskilnað frá Kanada Trump sendir 5.000 hermenn til Póllands Veit ekki hvort hann hafi misst tökin á öldungadeildinni Bein útsending: Nýsköpunarverðlaun Norðurlandanna Hugmyndir kjósenda um innflytjendur ekki í takt við raunveruleikann Ellefu Evrópuríki auglýsa eftir hættulegum dæmdum glæpamönnum Ben-Gvir fordæmdur fyrir framkomu sína gagnvart aðgerðasinnum Raúl Castro ákærður fyrir morð í Bandaríkjunum Trump segist munu ræða við forseta Taívan Hafa þurft að draga verulega úr olíuframleiðslu vegna árása Sat inni í 37 daga fyrir að grínast með morðið á Kirk Lögreglumenn vilja stöðva skaðabótasjóð Trumps Jarðskjálfti skók Kaupmannahöfn Segir samstarf Kína og Rússlands stuðla að stöðugleika í heiminum Sjá meira