Erlent

Andstæðingar báðu fyrir friði

Karl Ólafur Hallbjörnsson skrifar
Mahmoud Abbas, Frans páfi og Shimon Peres ganga til bænahalds í Vatíkaninu um helgina.
Mahmoud Abbas, Frans páfi og Shimon Peres ganga til bænahalds í Vatíkaninu um helgina. Fréttablaðið/AFP
Frans páfi tók vel á móti Mahmoud Abbas, forseta Palestínu, og Shimon Peres, forseta Ísraels, í Vatíkaninu um helgina.

Frans bauð leiðtogunum tveimur til Páfagarðs þegar hann heimsótti Mið-Austurlönd fyrir tveimur vikum.

Leiðtogunum var boðið til þess að þeir gætu beðið fyrir friði í átökum Palestínu og Ísraels í sameiningu.

Til að forðast ágreining báðu forsetarnir og páfi hver til síns guðs. Fyrst í nafni gyðingdóms, því næst í nafni kristinnar trúar, og loks í nafni islam. Er þetta í fyrsta sinn sem islam er iðkað í Páfagarði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×