Úkraínustjórn sakar forvera sína um stórfelld fjársvik Guðsteinn Bjarnason skrifar 11. júní 2014 07:30 Ihor Bilús, aðstoðarskattaráðherra Úkraínu. Vísir/AP
Ihor Bilús, aðstoðarskattaráðherra Úkraínu, segir að forveri sinn í embætti hafi tekið þátt í að skipuleggja stórfelld fjársvik, sem gengu út á það að búið var til flókið net fjölmargra gervifyrirtækja sem notað var til að fela slóð peninga sem ráðamenn og embættismenn fengu í vasann. Sérstakt leyniherbergi hafði verið útbúið í ráðuneytinu, þar sem lögð voru á ráðin. Herbergið var útbúið með gegnsæu borði og gegnsæjum stólum sem áttu að tryggja að ekki væri hægt að hlera það sem þar fór fram án þess að viðstaddir tækju eftir því. Oleksandr Klymenko, forveri Bílús í embætti, neitar þessum ásökunum og segist alltaf hafa barist gegn spillingu. Bilús hefur hins vegar dregið fram skjöl sem virðast styðja málflutning hans: „Í meginatriðum var það svoleiðis að hvar svo sem borið er niður þá var spilling við lýði í Úkraínu,“ hefur AP-fréttastofan eftir Önnu Derevjankó, framkvæmdastjóra Evrópska viðskiptasambandsins í Úkraínu. Hún segir mjög erfitt að vera ósammála ásökunum ráðherrans. Klymenko er, rétt eins og forsetinn fyrrverandi, Viktor Janúkóvitsj, flúinn úr landi. Þegar nýir ráðamenn tóku við völdum fyrr á þessu ári fóru þeir að rannsaka starfshætti fyrri stjórnar og segjast fljótlega hafa rekist á ýmislegt gruggugt.
Mest lesið „Stærsti höfundaréttarþjófnaður sögunnar“: Skora á íslensk stjórnvöld að feta í fótspor Dana Innlent „Ég hef engar vísbendingar fengið um að þetta sé að gerast“ Innlent Stoltur faðir fegurðardrottningar gekk frá Gleðigöngunni með óbragð í munni Innlent „Hefði ég ekki verið kominn af stað væri ég ekki að tala við þig núna“ Innlent Stálu myndavélum fyrir þrjár milljónir: „Grunar að þessu hafi verið stolið eftir pöntun“ Innlent Ósköp venjuleg kona ráðin sem leigumorðingi eftir kynni á stefnumótaforriti Erlent Óprúttnir aðilar hóta rofinni rafmagnstengingu berist greiðsla ekki strax Innlent Söguleg sátt milli há- og lágmenningar á Klapparstíg Lífið Teiknaði hakakross á hurðina hjá nágrannanum Innlent Allir gangi hamingjusamir úr nýjustu sundlaug landsins Innlent Fleiri fréttir Blaðamenn drepnir í tugatali: Banvænt mynstur misræmis og mótsagna Fundað í hverju horni fyrir Alaskahitting Trump og Pútín Öfgahægriflokkur mælist stærstur í Þýskalandi Hitamet falla og gróðureldar geisa í Evrópu og víðar Rússar myndu nota Donbas til að ráðast enn lengra inn í Úkraínu Ósköp venjuleg kona ráðin sem leigumorðingi eftir kynni á stefnumótaforriti Sendir frá Norður-Kóreu í „þrældóm“ í Rússlandi Greta Thunberg siglir á ný til Gasa Skoða að stofna viðbragðssveit gegn uppþotum í Bandaríkjunum Hernumin héruð horfi fram á þjóðernishreinsun Vara við afleiðingum samsæriskenninga eftir skotárás á heilbrigðisstofnun Komnir djúpt gegnum línu Úkraínumanna Smyglaði 850 skjaldbökum í sokkum frá Bandaríkjunum Albanese segir Netanyahu í afneitun Sendur til Íslands eftir þrætu um persónuupplýsingar innflytjenda Leiðtogar Evrópu ítreka sjálfsákvörðunarrétt Úkraínumanna Einn látinn og tíu slasaðir eftir stóra sprengingu „Þetta er í rauninni þreifingafundur“ Ákvörðun Trump valdabrölt: „Það á eftir að verða meira svona“ Kínverskt skip stórskemmt eftir árekstur við tundurspilli Neitar að birta dómsskjöl og gagnrýnir Trump-liða fyrir blekkingarleik Fordæmir dráp á blaðamönnum og vill sjá valkyrjur stíga harðar fram Sagður slaka á kröfum og útiloka ekki landsvæðaskipti Buðu ferðamönnum upp á „stjarnferðalag“ með heimablönduðu froskaeitri Sigar þjóðvarðliðum á götur Washington og setur lögregluna á sitt vald Ákæra stjórnendur flutningaskips vegna skemmda á sæstreng Sagður hafa unnið fyrir fjölmiðlateymi Hamas áður en stríðið hófst Fordæma „markviss“ dráp Ísraela á blaðamönnum á Gasa Boðar aðgerðir í þágu öryggis og fegrunar Washington D.C. Heimila sölu gervigreindar örflaga til Kína gegn hluta af ágóðanum Sjá meira
„Stærsti höfundaréttarþjófnaður sögunnar“: Skora á íslensk stjórnvöld að feta í fótspor Dana Innlent
„Stærsti höfundaréttarþjófnaður sögunnar“: Skora á íslensk stjórnvöld að feta í fótspor Dana Innlent