Jóhann Berg: Gott að finna fyrir trausti þjálfarans Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 23. október 2014 07:00 Jóhann Berg Guðmundsson er fastamaður í liði Charlton. Hér er hann í leik gegn Middlesbrough. vísir/getty
Jóhann Berg Guðmundsson, leikmaður Charlton í ensku B-deildinni, er að komast aftur af stað eftir meiðsli sem héldu honum frá keppni fyrr í mánuðinum. Hann missti reyndar af leik liðsins á þriðjudagskvöld en spilaði um helgina, er Charlton mætti Bournemouth og tapaði sínum fyrsta leik á tímabilinu. „Þetta er allt að koma til en ég hef verið að glíma við nokkur meiðsli og það getur stundum verið erfitt að koma sér aftur af stað,“ segir Jóhann Berg en hann vonast til að geta spilað með liðinu er það mætir Lundúnaliðinu Fulham á föstudagskvöld. Leikurinn verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. „Ég verð næstu 2-3 vikurnar að koma mér aftur af stað. Ég þarf bara að komast í gegnum verkina en ég hef verið fullvissaður um að ég sé ekki að gera illt verra með því að spila. Ef ég næ ekki leiknum á föstudag þá reikna ég með að verða hundrað prósent fyrir næsta leik á eftir,“ segir hann.Jóhann Berg gerði það gott með AZ áður en hann fór til Charlton.vísir/gettyLangt og strangt tímabil Charlton hefur komið mörgum á óvart með góðri byrjun en liðið er aðeins fjórum stigum frá toppnum eftir þrettán umferðir. „Liðið var í botnbaráttu í fyrra og margir áttu von á því að við yrðum á svipuðum slóðum í ár. En við höfum byrjað vel og spilað nokkuð skemmtilegan fótbolta. En það eru mörg lið í deildinni og tímabilið langt – ef við höldum þetta út þá er allt hægt,“ segir Jóhann sem sér ekki eftir því að hafa samið við liðið í sumar eftir fimm ára dvöl hjá AZ í Hollandi. „Hér er gott að búa og þegar ég er heill þá spila ég hvern leik. Þjálfarinn hefur trú á mér og það er gott að finna fyrir því. Þetta er ákveðinn gluggi sem ég get notað til að sýna mig og komast vonandi í ensku úrvalsdeildina einn daginn.“ Gríðarlega miklar breytingar voru gerðar á leikmannahópi Charlton í vor og Jóhann Berg var einn níu nýrra leikmanna sem komu til liðsins í sumar. En hann segir að leikmenn nái vel saman innan vallar sem utan.vísir/gettyErfitt að brjóta okkur niður „Við erum að spila 4-4-2, svipað og íslenska landsliðið sem er mjög gott fyrir mig, og erum mjög þéttir fyrir. Það er erfitt að brjóta okkur niður og við erum alltaf líklegir til að skora,“ segir Jóhann Berg og segir að enska B-deildin sé sterkari en hollenska úrvalsdeildin. „Helsti munurinn liggur í því að hér eru fleiri sterk lið og hver einasti leikur er erfiður. Maður getur aldrei leyft sér að slaka á. Stóru liðin eru öflug í Hollandi en hin eru nokkuð á eftir.“ Hann segir að allt tal um að það sé eingöngu kraftabolti spilaður í ensku B-deildinni sé rangt. „Það er meiri hraði hér en í Hollandi og aðeins meiri harka. Það eru þó engar brjálaðar tæklingar í hverjum leik og enginn hefur til dæmis enn tæklað mig aftan frá. Þetta er bara góður fótbolti og fullt af stórum og öflugum félögum sem spila í deildinni. Hann reiknar ekki með öðru en að verða klár í slaginn fyrir næstu landsleiki Íslands en veit að það verður erfitt að vinna sér sæti í liðinu. „Ég held mínu striki og geri mitt besta. Það er svo þjálfaranna að velja í liðið og ég tek þeirri ákvörðun.“ Ísland mætir næst Belgíu ytra í vináttulandsleik þann 12. nóvember og svo Tékklandi í undankeppni fjórum dögum síðar. Sá leikur fer fram í Plzen en Ísland og Tékkland eru á toppi A-riðils með fullt hús stiga.
Enski boltinn Mest lesið Haaland sló met Agüero Enski boltinn Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val Handbolti Everton - Man. United | Hörkuslagur í Liverpool Enski boltinn Ofursunnudagur á Sýn Sport Sport Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Falko farinn frá ÍR Körfubolti Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Enski boltinn Ágúst Orri fagnaði stórsigri í öðrum leik sínum með Excelsior Fótbolti Bað dómarann um hjálp út af megnri marijúanalykt Sport Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Everton - Man. United | Hörkuslagur í Liverpool Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Haaland sló met Agüero Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Sjá meira