„Húsin hrynja í ána og verða að tannstönglum“ Atli Ísleifsson skrifar 29. október 2014 11:05 Áin Opo hefur víða flætt yfir bakka sína. „
Það er hálfgert neyðarástand hérna í bænum. Það hætti aðeins að rigna í morgun en því miður er byrjað að rigna aftur,“ segir Ásta Steinunn Ástþórsdóttir, íbúi í norska bænum Odda, um 100 kílómetrum austur af Bergen.Gríðarleg úrkoma hefur verið í Noregi síðustu daga og hafa ár víða flætt yfir bakka sína. Ástandið er einna verst í bænum Odda. „Ég var að horfa á fréttamannafund þar sem kom fram að það væri byrjað að minnka í ánni en miðað við þessa rigningu sem var að byrja núna þá er ég ansi hrædd um að hún haldi áfram að vaxa,“ segir Ásta Steinunn í samtali við Vísi. Ásta Steinunn segir að tjónið hafa verið mjög mikið. „Þetta leit illa út í gærkvöldi. Þá vissum við að áin væri byrjuð að flæða yfir bakka sína. Tjaldsvæði hérna ofarlega í bænum var allt komið á flot og fólk var farið að gera sér grein fyrir því að þetta væri hættuástand. Svo þegar ég vaknaði í morgun var búið að rýma þó nokkuð mörg hús og áin var búin að taka fimm íbúðarhús.“Um 15 til 20 Íslendingar í OddaÁsta Steinunn segir byggðina vera svo nálægt ánni. „Þessi á verður oft stór en aldrei svona stór. Þetta er eitthvað met. Þá grefur áin grunninn undan húsunum og húsin hrynja ofan í ána og verða að tannstönglum.“ Ásta Steinunn segist sjálf búa í húsi sem sé á mjög fínum stað, sé ekki nálægt ánni og ekki í neinni hættu. Hún segir um fimmtán, tuttugu Íslendinga búa í bænum. „Allt mitt fólk er á fínum stað. Við erum ekkert í neinni hættu sem betur fer.“ Yfirvöld hafa nú látið rýma 22 hús í bænum og hafa um 75 manns yfirgefið heimili sín. „Þeir hafa miklar áhyggjur af því að það komi svo mikill aur og steinar með ánni og þeir eru ennþá hræddur um mjög mörg hús.“Norðmenn svo skynsamirÁsta Steinunn segir ótrúlegt að engin slys hafi orðið á fólki. „Megnið af þessu gerðist náttúrulega í kolniðamyrkri í nótt, en ekki hafa orðið nein slys á fólki. „Það er svo frábært með Norðmenn, þeir eru svo skynsamir og þeir eru svo fljótir að taka góðar ákvarðanir. Þeir eru vanir því hérna á Vesturlandinu, það er oft mikil skriðuhætta. Þeir eru snöggir að taka ákvarðanir og láta fólk frekar rýma hús sín, frekar en að vera þar áfram að óþörfu.“Byggðin í Odda er mjög nálægt ánni.Mynd/Ásta Steinunn ÁstþórsdóttirÁin Opo.Mynd/Ásta Steinunn Ástþórsdóttir
Tengdar fréttir Þrjú hús skoluðust burt í Noregi Úrhelli og flóð olli miklum spjöllum í Vestur-Noregi í dag . 28. október 2014 22:33 Norðmenn búa sig undir mikið berghlaup Norskir jarðfræðingar reikna með að stærðarinnar berghlaup verði í fjallinu Mannen milli Bergen og Þrándheims næstu klukkustundirnar. 28. október 2014 15:30 Mest lesið Gátu ekki gefið skýr svör um mögulegt ástarsamband Innlent „Við höfum ekki séð svona frábærar tölur í háa herrans tíð“ Innlent Tvö alvarleg atvik hjá dagforeldri skráð Innlent Loka Kennedy-miðstöðinni eftir að Trump fékk ekki nafn sitt á bygginguna Erlent Myndu rústa Póllandi á tveimur til þremur dögum Erlent „Það kom babb í bátinn í Hafnarfjarðarhöfn“ Innlent Ingólfur leysir Baldur af Innlent Laga þurfi fegurðarskynið að orkuskiptum Innlent „Að bilast“ yfir útlensku í almannarými Innlent Útkall lengst úti á hafi þriðja daginn í röð Innlent Fleiri fréttir Loka Kennedy-miðstöðinni eftir að Trump fékk ekki nafn sitt á bygginguna Myndu rústa Póllandi á tveimur til þremur dögum Skutu vegna „ögrandi hegðunar“ dönsku herþyrlunnar Hægt hefði verið koma í veg fyrir dauðsföll barna á sjúkrahúsi Letby Eitt alræmdasta sakamál Ástralíu: Raðmorðingja sleppt úr fangelsi Nemandi alvarlega særður í stunguárás í skóla í Osló Lýsti yfir samkomulagi sem lá ekki fyrir Rússneskt skip skaut blysum að danskri herþyrlu Hafna viðræðum til hægri Úrskurður Hæstaréttar bakslag fyrir Trump Finnar ganga til liðs við kjarnorkuvopnaverkefni Frakka Rússneskur auðjöfur borgaði fyrir draumabrúðkaup Trumps Trump segir að árásum á orkuinnviði verði hætt Vilja verða jafningjar Englendinga Stjórnarmyndunarmaraþon framundan í Svíþjóð Sádar í slæmri stöðu en Trump kennir Selenskí um Gefa kola- og gasorkuverum lausan tauminn Finnar taka þátt í kjarnorkuvernd Frakka Talinn hafa geymt lík foreldra sinna í frysti í þrjátíu ár „Það er ekki Stóra-Bretland heldur litla England“ Leita 129 manns eftir að ferju hvolfdi við Indónesíu Stjórnin líklega fallin en staðan afar þröng Johnson rétt slapp við árás Rússa Möguleiki á að úrslit ráðist ekki fyrr en í næstu viku Munurinn minnkar í nýrri spá Vinstri blokkin leiðir í útgönguspám „Það er mjög jafnt á milli blokkanna“ Óboðinn gestur gripinn við heimili Harris Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Sjá meira
Þrjú hús skoluðust burt í Noregi Úrhelli og flóð olli miklum spjöllum í Vestur-Noregi í dag . 28. október 2014 22:33
Norðmenn búa sig undir mikið berghlaup Norskir jarðfræðingar reikna með að stærðarinnar berghlaup verði í fjallinu Mannen milli Bergen og Þrándheims næstu klukkustundirnar. 28. október 2014 15:30