Kuldakastið í Bandaríkjunum: "Andlitið hreinlega frýs á manni" Hrund Þórsdóttir skrifar 6. janúar 2014 20:00
16 dauðsföll eru þegar rakin til óveðursins sem nú gengur yfir Bandaríkin. Veðurspár gera ráð fyrir versta veðrinu í fylkjum norðaustan til og lýst hefur verið yfir neyðarástandi í Boston, New York og New Jersey. Kolbrún Kristjánsdóttir Fass býr í Chicago og þar segir hún búist við um 50 stiga frosti vegna vindkælingar. Skóla sem hún vinnur í hefur aðeins verið lokað í einn dag á undanförnum 23 árum en hann var lokaður í dag. Allir grunnskólar á svæðinu eru líka lokaðir. „Skólunum er stundum haldið opnum af því að mikið af þessum börnum er úr fátækum hverfum og þau fá að borða í skólunum svo þeir halda þeim opnum eins mikið og þeir geta. Samt var tilkynnt í gærkvöldi að skólarnir yrðu lokaðir,“ segir Kolbrún.Jóhann Friðriksson þurfti að beita logsuðutæki á frosna lása til að komast af heimili sínu í dag.Hún segir fólk beðið að keyra ekki nema það sé lífsnauðsynlegt þar sem fólk geti látist vegna kulda á örskömmum tíma, til dæmis ef bílar bili. Hún segir mikið um útigangsmenn í borginni. „Maður auðvitað vonast til að hafa rangt fyrir sér en ég get ekki ímyndað mér annað en að það verði einhver dauðsföll út af þessum kulda,“ segir hún. Hún segir fólk óttaslegið og byrjað að hamstra mat. „Fólk er að birgja sig upp af mat og í mörgum búðum er örtröð og læti því fólk er að reyna að útvega sér vistir.“ Jóhann Friðriksson býr einnig í Chicago og hann þurfti að beita logsuðutæki á frosna lása til að komast af heimili sínu í dag. „Fólk er bara beðið að fara ekki út nema í brýnustu nauðsyn. Dóttir konunnar minnar vill ekki fara út með barnið sitt svo við þurfum að fara þangað yfir til að passa fyrir hana ef hún þarf að fara út. Þetta er óvenjukalt og andlitið hreinlega frýs á manni þegar maður fer út,“ segir Jóhann. Hann segir vegi ísi lagða og að margir bílar hafi farið út fyrir vegi eða þeir oltið. „Þetta er búið að vera dálítið kalt og ég þarf að vera hér í kjallaranum mínum að kynda því annars frjósa bara rörin.“
Mest lesið Bandaríkin og Íran komist að samkomulagi um vopnahlé Erlent Hvenær verður hlaðvarp að fjölmiðli? Innlent Braut rúðu eftir að hafa verið synjað um starf Innlent Meirihluti þeirra sem taka afstöðu andvíg aðild að ESB Innlent Vance sakar ESB um kosningaafskipti á kosningafundi með Orbán Erlent Næturlokunin komi sér afar illa fyrir fjölda íbúa Innlent Vitað um tíu dauðsföll af völdum eldinga hér á landi Innlent Hegðun Trumps vonbrigði Innlent Tveir fluttir á sjúkrahús eftir að eldur kviknaði í bílskúr Innlent Bein útsending: Artemis II á leiðinni heim Erlent Fleiri fréttir Bein útsending: Artemis II á leiðinni heim Vance sakar ESB um kosningaafskipti á kosningafundi með Orbán Bandaríkin og Íran komist að samkomulagi um vopnahlé Hótar að útrýma írönsku þjóðinni Leikskólabarn lést eftir að það var kramið í koju Hvað er „sveitó“?: Spænskir stjórnmálaleiðtogar deila um Guernica Artemis II er á heimleið JD Vance heimsækir Orban fyrir kosningarnar um helgina Íranska þjóðin vöruð við því að nota lestar landsins í dag Íranska þjóðin fagni sprengjuregni Tillögum að vopnahléssamkomulagi komið til stríðandi fylkinga Tveir létust í snjóflóði í Hemsedal Fjær að heiman en nokkur maður frá upphafi Orbán sakaður um sprengjutilræði Yfirmaður leyniþjónustunnar felldur Féll fyrir borð í Norðursjó í ofsaveðri Flugliðinn nú „alvarlega særður“ Kanna skothvelli við Hvíta húsið Upplausn í Borgaraflokknum og formaðurinn sakaður um alræði „Opnið djöfulsins sundið, sjúku fantarnir ykkar“ Sautján ára drengur lést í snjóflóði Flugliðanum bjargað eftir hættulega björgunaraðgerð Karlmenn þurfa leyfi til að ferðast lengur en í þrjá mánuði „48 klukkustundir þar til allt fer til fjandans“ Mafíuforingi á flótta handtekinn í lúxusvillu á Amalfi-strönd Ekki þeir einu sem leita flugmannsins Ekki vopnahlé um páskana heldur regn sjálfsprengidróna Loksins sinni einhver í Westminster vinnunni sinni NASA deilir myndum af jörðinni: „Treystið okkur, þið lítið æðislega vel út“ Svarar engu um hver viðbrögð yrðu næðu íranskar hersveitir til flugmannsins Sjá meira