Leiðinlegar kosningar í Noregi Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar 9. september 2013 14:44 Allir þykja nokkuð vissir um að Jens Stoltenberg verði ekki næsti forsætisráðherra Noregs Mynd/úr safni
Það er bara gott að kosningabaráttan sé búin að vera leiðinleg því það sýnir og sannar að Noregur er samlynt og ríkt land. Þetta stendur í norska dagblaðinu VG í dag. Í dag er kosið til stórþings í Noregi. Það er þó ansi rólegt í kjörklefunum í ráðhúsinu í Osló og rímar það við kosningabaráttuna undanfarnar vikur. Stjórnmálaskýrendur í Noregi eru sammála um að kosningabaráttan hafi verið sérstaklega leiðinleg. Enginn vafi virðist leika á því að borgaraflokkurinn Hægri vinni Verkamannaflokkinn og því eru kosningaúrslitin löngu ljós í huga margra. Ástæðan fyrir því að Hægri eru sigurstranglegir er ekki almenn óánægja með starfandi forsætisráðherra, Jens Stoltenberg, heldur sú að fólk vill sjá ný andlit í pólitík eftir átta ár með Stoltenberg og ríkisstjórn hans. Einn kjósenda sagði í viðtali við Politiken að olían hafi gert Norðmenn aðgerðarlausa og ríkjandi ánægja í samfélaginu festi stjórnmálamenn í léttvægum smáatriðum í stað þess að reyna að svara spurningum eins og hvað gerist þegar olían klárast. Norska dagblaðið, VG, skrifar í leiðara sínum í dag varnarræðu um hina leiðinlegu kosningabaráttu. „Það eru ekki djúpar deilur á milli Norðmanna. Við erum heldur ekki í djúpri efnahagskrísu eins og mörg önnur lönd í kringum okkur,“ stendur í blaðinu og leiðarahöfundur heldur áfram. „Einhverjir óska sér kannski æsandi kosningabaráttu spennunnar vegna. En það er skrítið að væla yfir því að í Noregi búi fólk í samlyndi og að samfélagið standi traustum fótum. Ef gjaldið fyrir það er leiðinleg kosningabarátta þá getum við alveg lifað með því,“ stendur í hinu norska dagblaði VG.
Mest lesið Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Innlent Tveir lögreglumenn sprengdir í loft upp Erlent Hvar er opið á aðfangadag? Innlent Blússandi hagvöxtur í Bandaríkjunum Erlent Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Innlent Bæta við allt að 200 íbúðum og mathöll í Spöngina Innlent Foreldrar skipverjans fá áheyrn í Hæstarétti Innlent Maður í umferðarslysi reyndist fíkniefnasali Innlent Innflytjendamálin almenningi efst í huga Innlent Innanlandsflugi aflýst Innlent Fleiri fréttir Tveir lögreglumenn sprengdir í loft upp Blússandi hagvöxtur í Bandaríkjunum Nýjar ákærur á hendur Russell Brand Fleiri Epstein-skjöl birt: Bað um „óviðeigandi vinkonur“ Saka AfD um að ganga erinda Kremlverja Kínverjar og Rússar lýsa yfir stuðningi við Venesúela Skapari Call of Duty lést í bílslysi Trump nefnir nýja kynslóð orrustuskipa í höfuðið á sjálfum sér „Bandaríkin eiga ekki að taka yfir Grænland“ Nýr ritstjóri stöðvaði umfjöllun um brottvísanir Trump Breiddi út faðminn fyrir rasista: „Þið þurfið ekki að biðjast afsökunar á að vera hvít lengur“ Sprengdu rússneskan hershöfðingja í loft upp í Moskvu Undirbúningur árásarinnar stóð yfir í marga mánuði Trump skipar sendifulltrúa fyrir Grænland Segir unnið að því að móta sameiginlega nálgun Bandaríkjanna, Úkraínu og Evrópu Sýknaður af nauðgun eftir að hafa verið skimaður fyrir sjaldgæfri svefnröskun Málið sem Trump getur ekki losað sig við Grunaður um manndráp eftir að tveggja ára drengur féll úr blokk Fóru um borð í vélvana rússneskt skip Baulað á Albanese á minningarathöfn á Bondi-strönd Kvarta yfir ritskoðun Epstein-skjala: „Við vitum ekki hvað við vitum ekki“ Níu skotnir til bana á krá Sextán ára fékk greitt fyrir að færa Epstein stúlkur Ljósmyndir horfnar úr Epstein-skjölunum, þar á meðal ein af Trump Vilja dauðarefsingu af borðinu vegna hagsmunaáreksturs ráðherra Pútín sagður hafa valið Witkoff Gerðu umfangsmiklar árásir gegn ISIS í Sýrlandi Það helsta úr fyrsta skammti Epstein-skjalanna Epstein-skjölin birt Draga tilvist neðanjarðarhafs á Títan í efa Sjá meira