Eldsprengjur fljúga í Istanbúl Þorgils Jónsson skrifar 9. september 2013 13:19 Mótmælandi lætur hér logandi bensínsprengju vaða í átt að lögreglu í Istanbúl í dag. NordicPhotos/AFP
Nordicphotos/AFP Til átaka kom í Istanbúl í dag þar sem lögregla lét til skarar skríða gegn hópi fólks sem hafði komið saman í Okmeydani hverfinu. Fólkið safnaðist saman til stuðnings við Berkin Elvan, fjórtán ára pilt sem er enn í dái á sjúkrahúsi eftir að hafa fengið táragashylki frá lögreglu í höfuðið á meðan mótmælunum vegna fyrirhugaðra framkvæmda við Gezi-garð stóð í júní. Frá þessu segir á fréttavefnum Hurryet, en ekkert kemur þar fram um hvort nokkur hafi slasast í átökunum. Fólkið hugðist ganga að dómshúsinu í Istanbúl og krefjast þess að lögreglumaðurinn sem slasaði Elvan verði látinn svara til saka. Drengurinn var ekki þáttakandi í mótmælunum, heldur var á leið út í búð þegar hann fékk hylkið í höfuðið. Lögregla tilkynnti fólkinu að samkundan í dag væri á skjön við lög og skaut svo táragasi á hópinn eftir að nokkrir grímuklæddir menn hófu að henda grjótum og bensínsprengjum að lögreglu. Nokkuð hefur hægt um frá því að rósturnar brutust út í Tyrklandi í maí. Mikill fjöldi fólks þusti þá út á götur landsins til að mótmæla ofríki Erdogans forsætisráðherra, eftir að lögregla hafði gengið harkalega fram gegn mótmælendum sem standa gegn eyðileggingu Gezi-almenningsgarðsins. Síðan þá hafa þó stöku sinnum blossað upp átök, en fimm manns hafa látist frá því að átökin byrjuðu og þúsundir hafa slasast.
Mest lesið Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Innlent Vaktin: Hildur valdi Viðreisn og Framsókn Innlent Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Innlent Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsókn mynda meirihluta Innlent Bardagabúr rís við Hvíta húsið Erlent Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Innlent Féllust á að gera ekki lítið úr tilfinningum hinna eða ræða persónuleg mál Innlent Tjörn, skautasvell, íbúðir og útivistarsvæði rísi á gjörbreyttu svæði Innlent Icelandair og flugmenn komnir í fjölmiðlabann Innlent Hótel í fullum rétti að neita konu um kranavatn Erlent Fleiri fréttir Hörðustu árásir á Líbanon í langan tíma Hótel í fullum rétti að neita konu um kranavatn Bardagabúr rís við Hvíta húsið Skugganefndir styðja umdeilda Demókrata Kalla rússneska sendiherra á teppið vegna hótana Gera almenningssamgöngur ódýrari vegna olíukreppunnar Fleiri „brúðir-ISIS“ lenda í Ástralíu Ráðist á heilbrigðisstarfsmenn í ebólu-faraldri Æfðu árás á Suður-Kóreu Fjögur látin í árekstri skólarútu og lestar Hóta frekari árásum og hvetja sendifulltrúa til að flýja Kænugarð Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Margrét Þórhildur aftur inn á sjúkrahús Hitamet í maí slegið í Bretlandi Tæplega tuttugu fluttir á sjúkrahús vegna óþefs Rubio vongóður um vopnahlé Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Trump vill ekki flýta sér Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skothvellir við Hvíta húsið Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Mjakist nær samkomulagi Kratar fá umboðið á ný og hyggja á miðjuvinstri stjórn Níutíu látnir eftir sprengingu í kolanámu Spjallað í Reykjavík á meðan drónarnir dynja á Kænugarði Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Vilja skipa erindreka en vita ekki hvert erindið er Borgaraleg stjórn virðist úr sögunni Rutte segir ríka Evrópu reiða sig um of á Bandaríkin Sjá meira