25 hryðjuverkamenn sluppu Þorgils Jónsson skrifar 30. júlí 2013 08:44 akistanskir lögregluþjónar standa vörð við fangelsið í Dera Ismail Khan þaðan sem talibanar frelsuðu 250 manns. 25 þeirra eru taldir hættulegir hryðjuverkamenn. NordicPhotos/AFP
Vígamenn Talibana í Pakistan gerðu mikið áhlaup á fangelsi í bænum Dera Ismail Khan í norðvesturhluta landsins í nótt og frelsuðu þaðan um 250 fanga, þar á meðal 25 manns sem yfirvöld segja „hættulega hryðjuverkamenn“. Sex lögregluþjónar, sex fangar úr hópi sjíta-múslima og tveir almennir borgarar létu lífið í árásinni, en talibanarnir voru um 70 talsins og vopnaðir byssum og sprengjum. Talibanar gengust við árásinni, sem stóð í um fjóra og hálfa klukkustund, og sagði talsmaður þeirra að átta liðsmenn þeirra hafi verið útbúnir sprengjuvestum og tveir hafi sprengt sig í loft upp.Sex lögreglumenn féllu í árás talibana í nótt og margir særðust, þar á meðal þessi.NordicPhotos/AFPAðgerðin hófst með sprengingu sem skók allt hverfið í nágrenni fangelsisins, en eftir það sprengdu talibanarnir margar minni sprengjur við útveggi fangelsisins og komust þannig inn. Þegar þangað var komið tókust þeir á við lögreglu og verði og kölluðu með gjallarhorni á þá fanga sem þeir voru komnir til að frelsa. Lögregla og öryggissveitir höfðu hendur í hári níu fanga í nótt og leita nú, með fulltingi hersins, hinna sem sluppu. Fangelsisyfirvöldum hafði borist hótun um að árás yrði gerð, en að sögn bjuggust þau ekki við því að talibanar myndu láta til skarar skríða svo fljótt. Um 5.000 fangar voru í fangelsinu, þar af um 300 vígamenn. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem talibanar grípa til aðgerða til að frelsa félaga sína, en í apríl í fyrra sluppu 400 fangar, þar á meðal 20 hættulegir vígamenn, í álíka árás á fangelsi í Bannu.
Mest lesið Viðar Örn gaf Sævari Louis Vuitton-tösku Innlent Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Innlent Sundþjálfari KR með hníf á lofti fyrir lykilfund sundfólks Innlent Játar innbrot í búin Innlent Norðmenn kynna „stærstu breytingarnar frá upphafi“ á EES samstarfinu Erlent „Er þetta ekki komið út í hártoganir?“ Innlent „Ég þekkti strax höfuðið á henni úr fjarska“ Innlent Lífsnauðsynlegt að meðhöndla risarækjur líkt og kjúkling Innlent KR-ingar harma sundátökin: „Mikilvægt að við hlúum hvert að öðru“ Innlent Þurftu að keyra á hnífamann sem slóst við lögreglu Innlent Fleiri fréttir Bandaríkin hafi samið við Danmörku um Grænland Íhuga að fara nýja leið og bjóða Rússum viðskiptasamninga Trump rekur CNN og fleiri fjölmiðla úr Hvíta húsinu Andersson fær stjórnarmyndunarumboðið Hákarl banaði sundmanni Segir „íslamista“ skýra velgengni vinstrimanna Danskar F-35 lentu á Grænlandi í fyrsta sinn Kínverjar leituðu til Írana fyrir hönd Sáda Norðmenn kynna „stærstu breytingarnar frá upphafi“ á EES samstarfinu Segir Karl hafa hljómað himinlifandi eftir dauða Díönu Slapp við fangelsisvist eftir að hafa notað maura í matargerð Rússar kjósa sér 450 skoðanabræður Rússar hafi skipulagt fjölþáttaárás gegn Póllandi Vill fara með Svíþjóð í nýja átt Telja Bandaríkjamenn kunna að hafa framið stríðsglæpi í Íran Kristersson sagði af sér eftir að öll atkvæði voru talin „Þetta snýst um fullveldi“ Þvertaka fyrir að Karl hafi sagt að Díana myndi gleymast fljótt Sænskur stórglæpon handsamaður í Marokkó Samþykktu frumvarp Grahams einu og hálfu ári seinna Hótar háum tollum og að hætta viðskiptum við ESB Varði breytingar á reglum um ráðningar og dýraníð Krefst þess með hástöfum að stýrivextir verði lækkaðir Nær hundrað prósent líkur á sigri vinstri blokkarinnar Kostaði 57 milljarða að verjast einni árás Hútar skutu niður herþotu Sáda Ný réttarhöld gætu reynst flókin í framkvæmd Afhjúpa RIS-vanda í Evrópu og Bandaríkjunum Býður Kanada aukaaðild að Evrópusambandinu Fréttaþyrla NBC hrapaði í Los Angeles Sjá meira