Erlent

Lestarstjórinn var í símanum

Guðsteinn Bjarnason skrifar
Francisco Jose Garzon Amo.
Francisco Jose Garzon Amo. Nordicphotos/AFP
Upplýsingar úr svarta kassa hraðlestarinnar, sem fór út af teinunum fyrir helgi, sýna að Francisco Jose Garzon Amo lestarstjóri var í símanum þegar hann ók lestinni allt of hratt í hættulega beygju.

Af svarta kassanum sést einnig að lestin var á 192 kílómetra hraða þegar slysið varð skammt frá Santiago de Compostela á norðvesturhorni Spánar, en leyfilegur hámarkshraði á þessum stað er 80 kílómetrar á klukkustund.

Lestarstjórinn er grunaður um manndráp af gáleysi, en hefur enn ekki verið formlega ákærður. Slysið varð 79 manns að bana og tugir særðust að auki.

Garzon Amo var að ræða við starfsfólk lestarfyrirtækisins í síma þegar slysið varð. Sjálfur meiddist hann nokkuð, en hefur verið útskrifaður af sjúkrahúsi.

BBC greinir frá þessu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×