Erlent

Rússar óttast kjarnorkuslys, Kínverjar nýja kreppu

Guðsteinn Bjarnason skrifar
Xi Jinping og Vladimír Pútín í Pétursborg í morgun.
Xi Jinping og Vladimír Pútín í Pétursborg í morgun. Nordicphotos/AFP
Zhu Guangayo, aðstoðarfjármálaráðherra Kína, segir verulega hættu á nýrri heimskreppu ef Vesturlönd gera árásir á Sýrland.

Zhu er staddur í Sankti Pétursborg í Rússlandi, þar sem leiðtogafundur 20 stærstu iðnríkja heims er að hefjast.

„Hernaðaraðgerðir myndu örugglega hafa slæm áhrif á efnahag heimsins, sérstaklega á olíuverð,” hefur bandaríska fréttastofan AP eftir honum.

Hann segir almennt talið að hver 10 prósenta hækkun á olíuverði hafi í för með sér 0,25 prósenta samdrátt heimsframleiðslunnar.

Talsmaður rússneska utanríkisráðuneytisins, Alexander Lúkasjevitsj að nafni, bætti svo um betur í morgun og sagði hættu á alvarlegu kjarnorkuslysi, fari svo að gerðar verði loftárásir á kjarnorkubúnað í Sýrlandi. 

Hann segir Sýrlendinga meðal annars vera með lítinn kjarnaofn nálægt Damaskus, og skemmist hann geti það valdið geislamengun á stóru svæði.

„Afleiðingarnar gætu orðið skelfilegar,” hefur AP eftir honum.

Sýrlendingar hófu tilraunir með kjarnorku árið 1979, en eru aðilar að alþjóðasamning um bann við útbreiðslu kjarnorkuvopna og hafa því skuldbundið sig til að nota kjarnorku einungis í friðsamlegum tilgangi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×