Sakar stjórn Stoltenbergs um ábyrgð á morði Guðsteinn Bjarnason skrifar 5. september 2013 10:30 Carl I. Hagen á kosningafundi fyrir fjórum árum. Nordicphotos/AFP „
Rauðgræna meirihlutastjórnin hefur lát Önju á samviskunni,” skrifaði Carl I. Hagen, fyrrverandi leiðtogi norska Framfaraflokksins, á Facebook-síðu sína. Hann eyddi færslunni skömmu síðar, eftir að hafa fengið hörð viðbrögð, meðal annars úr eigin flokki. Þingkosningar verða í Noregi á mánudag. „Sumum þótti þetta dálítið harkaleg framsetning,” sagði Hagen í viðtali á vefsíðu norska dagblaðsins Verdens Gang. „En ég stend við meginboðskapinn, og það er að vægar refsingar og langar biðraðir eftir fangelsisplássi hafa afleiðingar af þessu tagi.” Hagen er þarna að tala um morðið á rúmlega tvítugri stúlku, sem hét Anja Weløy Aarseth. 23 ára gamall maður hefur nú játað á sig morðið, en hann hefur áður hlotið dóma fyrir ofbeldisbrot, bæði í janúar á þessu ári og í október á síðasta ári. Hagen gaf ekki upp hvort það hafi verið Siv Jensen, arftaki hans í formennsku Framfaraflokksins, sem bað hann um að eyða Facebook-færslunni. Hún hefur lagt mikla vinnu í að má af flokknum þá ímynd lýðskrums og tækifærismennsku, sem stóryrtar yfirlýsingar Hagens gáfu honum. Framfaraflokkurinn hefur verið að mælast með rúmlega 15 prósenta fylgi í skoðanakönnunum undanfarið, sem er töluvert minna en í síðustu þingkosningum. Þá fékk flokkurinn tæp 23 prósent atkvæða. Hægri flokkunum er hins samanlagt, að Framfaraflokknum meðtöldum, spáð nægilega miklu fylgi til að fella vinstristjórn Jens Stoltenbergs. Til þessa hafa hægriflokkarnir ekki viljað hafa Framfaraflokkinn með í stjórn, en breytt ímynd flokksins með Siv Jensen í forystunni hefur orðið til þess að nú bendir allt til að hann komist til valda í fyrsta sinn.
Mest lesið Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra í London Innlent Verjanda Helga Bjarts nóg boðið Innlent Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Innlent Eldur olli miklum skemmdum í kjallara Innlent Reyndi að greiða með ellefu þúsund króna seðli Innlent Launahækkun Höllu illskiljanleg Innlent Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Erlent Samfylking og Sjálfstæðisflokkur hækka flugið Innlent Grunaðir um að táldraga táningsstúlkur Innlent Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Innlent Fleiri fréttir Vilja festa símabannið í lög Vill þrjátíu milljarða vegna fyllerísfréttar D4vid ákærður fyrir að myrða táningsstúlku Utankjörfundur fer vel af stað og fylgið að setjast Stór skálfti í Japan og flóðbylgjuviðvörun gefin út Bandamaður Rússa vann stórsigur í Búlgaríu Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Starmer á leið á átakafund í þinginu Stjórnvöld í Tehran sögð orðin afhuga samningaviðræðum Barist á hafi úti Átta börn látin eftir skotárás „Það er kominn tími til að binda endi á drápsvél Íran“ Klukkan tifar og enn langt í land Að minnsta kosti sex látnir eftir gíslatöku í matvöruverslun Gámaskip Samskipa bilaði við Færeyjar Trump segir Írani krúttlega og þeir geti ekki kúgað Bandaríkin Fimm látnir eftir skotárás í Kænugarði Skotið þrátt fyrir heimild frá hernum: Áhafnir tilkynna árásir á Hormússundi Funduðu með forstjóranum þrátt fyrir lögsókn Hormússundi lokað á ný Bretar og Frakkar ætla að leiða aðgerðir við Hormússund Hormússundið opið á ný Vopnaðir ræningjar héldu 25 í gíslingu í banka á Ítalíu D4vd handtekinn vegna gruns um að hafa banað táningsstúlku Mandelson veitt öryggisheimild þrátt fyrir að hafa fallið á bakgrunnsathugun Brothætt vopnahlé í Líbanon hefur tekið gildi Boðar tíu daga vopnahlé milli Ísraels og Líbanon Páfinn skaut föstum skotum að harðstjórum Íranir geti valið auðveldu leiðina eða þá erfiðu Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Sjá meira