Þátttaka Pakistans í drónaárásum staðfest Þorgils Jónsson skrifar 24. október 2013 11:26 Fjarstýrð loftför sem þetta eru helsta vopn Bandaríkjamanna í baráttunni gegn hryðjuverkamönnum. Hundruð óbreyttra borgara hafa þó fallið í loftárásum með þessum tækjum. NordicPhotos/AFP
Stjórnvöld í Pakistan tóku beinan þátt í drónaárásum Bandaríkjamanna innan eigin landamæra þrátt fyrir að hafa aldrei gengist við slíku. Þetta kemur fram í frétt Washington Post í dag. Blaðið vitnar í leyniskjöl, meðal annars minnisbréf, sem þeir komust yfir, en þar segir meðal annars á einum stað að drónaárás hafi verið gerð „að beiðni“ pakistanskra stjórnvalda og á öðrum stað er talað um möguleg skotmörk sem hafi verið sett upp í samstarfi leyniþjónustustofnannanna CIA í Bandaríkjunum og ISI í Pakistan. Síðustu ár hafa hundruð óbreyttra pakistanskra borgara fallið í drónaárásum Bandaríkjamanna, sem beinast gegn Talibönum og öðrum víga- eða hryðjuverkahópum. Árásirnar hafa vakið mikla reiði í landinu og pakistönsk stjórnvöld hafa gagnrýnt þessar aðgerðir og sagt þær brjóta gegn fullveldi landsins. Nú er hins vegar staðfest að árásirnar voru gerðar með þeirra samþykki og stjórnvöld og leyniþjónustan tóku beinan þátt í að skipuleggja þær. Í raun eru þetta ekki ný tíðindi þar sem lengi hefur verið gert ráð fyrir því að Pakistan veiti að minnsta kosti þegjandi samþykki fyrir árásunum. Til dæmis kom fram í einu skjali sem lekið var til Wikileaks og birt árið 2010 að Yousuf Raza Gilani, þáverandi forsætisráðherra hafi sagt um árásirnar: „Mér er sama hvað þeir gera, á meðan þeir ná rétta fólkinu. Við munum mótmæla þessu á þinginu og svo gleyma málinu.“ Nú hefur þetta hins vegar verið staðfest, sem setur Nawas Sharif, forsætisráðherra Pakistans, í vandræðalega stöðu þar sem hann hefur verið afar gagnrýninn í garð Bandaríkjanna síðustu daga. Fyrir skemmstu voru birt frumdrög skýrslu frá Sameinuðu þjóðunum þar sem fram kemur að um 400 óbreyttir pakistanskir borgarar hafi fallið í drónaárásum.
Mest lesið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Innlent Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Innlent „Áfall fyrir starfsfólk“ Innlent Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Innlent Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Innlent Nefndin sammála Ólafi Ragnari um skipun forsetaritara Innlent Tíu tilvik í fyrra þar sem látnir lágu ófundnir í viku eða lengur Innlent Fleiri fréttir Boðar tíu daga vopnahlé milli Ísrael og Líbanon Páfinn skaut föstum skotum að harðstjórum Íranir geti valið auðveldu leiðina eða þá erfiðu Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Viðræður sagðar standa yfir en ekkert fast í hendi Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Gríðarleg vonbrigði meðal kennara með orð Ingu Sæland í morgun Flóttamenn drukknuðu þegar yfirfullum togara hvolfdi Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Sjá meira