Berlusconi bíður lokaniðurstöðu Guðsteinn Bjarnason skrifar 1. ágúst 2013 07:00 Fyrir utan byggingu Hæstaréttar í Róm hafa fjölmiðlar beðið síðan á þriðjudag eftir því að dómurinn kynni niðurstöðu sína. Fréttablaðið/AP
Hæstiréttur Ítalíu hefur farið sér að engu óðslega í máli Silvíu Berlusconis, því fyrsta af nokkrum dómsmálum sem komið er á endastöð í flóknu kerfi ítalskra dómstóls. Reiknað var með að dómsuppkvaðning yrði á þriðjudaginn, en það hefur dregist og verður líklega í dag. Þá ráðast úrslit hins umdeilda stjórnmálamanns, sem fær ekki að sitja lengur á þingi staðfesti hæstirétturinn dóm neðra dómstigs. Berslusconi var á síðasta ári dæmdur til þess að sitja fjögur ár í fangelsi og jafnframt var honum bannað að gegna opinberu embætti í fimm ár. Embættisbannið hefur þau áhrif, verði það staðfest, að þingsetu Berlusconis er lokið. Þótt Berlusconi sé ekki ráðherra í ríkisstjórn Enricos Letta forsætisráðherra hefur Berlusconi mikil áhrif. Stjórnin þarf á stuðningi flokks hans að halda en þingmenn flokksins hafa hótað því að slíta stjórnarsamstarfinu staðfesti hæstiréttur dóminn. Sjálfur segir Berlusconi málaferlin öll af pólitískum rótum runnin, og sparar ekki stóru orðin í viðtölum: „Ef þeir dæma mig verð ég helgur píslarvottur ítalska réttarríkisins,“ sagði hann í viðtali við dagblaðið Libero.
Mest lesið Grjóthart nei hjá dúxinum í Yale Innlent Landsmenn allir harmi slegnir Innlent Thunberg og félagar borin út úr norska seðlabankanum Erlent Tuttugu milljónir í bankanum og kona í gæsluvarðhaldi Innlent Þáttastjórnendum X-sins sagt upp Innlent Leituðu ítrekað í geymslur stofnunar Innlent Bíll konunnar sást á upptöku Innlent Aðstoðar allt að fimmtán ára gömul börn að hætta með bleyju Innlent „Kannski verður maður grátandi hálft hlaupið, en þá bara er það þannig“ Innlent Dauðbrá og varð öskureið þegar hún sá sjálfa sig í gervigreindarmyndbandi Innlent Fleiri fréttir Gerðu húsleit á heimili fyrrverandi þjóðaröryggisráðgjafa Trump Staðfesta hungursneyð á Gasa Thunberg og félagar borin út úr norska seðlabankanum Hótar Hamas með helvíti og gjöreyðingu Gasa-borgar Rússar vilja koma að því að tryggja öryggi Úkraínu Erik Menendez fær ekki reynslulausn Fella niður 64 milljarða sekt Trump Samþykktu ný hagstæðari kjördæmi í Texas Vara við hörmungum verði gert áhlaup á Gasaborg Stefna á fjöldaframleiðslu á eigin stýriflaugum Losun Kína dregst saman vegna uppgangs í sólarorku Líkamlegar refsingar hamla þroska og hafa áhættu í för með sér Handtekinn á Ítalíu vegna Nord Stream sprenginganna Rússar halda árásum áfram Ætla að stoppa farandfólk með svartri málningu Mega neita þeim aðgengi sem bera keffiyeh Hefur áhyggjur af gervigreind sem virðist sjálfsmeðvituð Engir hermenn í Úkraínu og enginn fundur með Pútín Kalla tugi þúsunda til herþjónustu Öflugasti sjónaukinn fann áður óþekkt tungl í sólkerfinu „Stríðin“ sex, stundum sjö, sem Trump segist hafa stöðvað Kirkjan í Kiruna komin á áfangastað Frambjóðandi sem ræddi um morð á hundi farinn í hundana Nýtt flaggskip Rússa á sjó eftir tuttugu og fimm ár í slipp Hondúras og Úganda samþykkja að taka við hælisleitendum Segist vilja komast til himna Ísraelar taki ekki annað í mál en lausn allra gísla Bauð Selenskí til Moskvu Segir ásakanir Evrópu barnalegar Þingmaður sagður hafa svipt sig lífi í finnska þinghúsinu Sjá meira