Kosið í Simbabve: Niðurstaðna að vænta innan fimm daga 1. ágúst 2013 09:19 Erkifjendurnir Robert Mugabe og Morgan Tsvangirai bítast um forsetastólinn í Simbabve. Kosningar fóru fram í gær og er niðustaðna að vænta innan fimm daga. NordicPhotos/AFP
Talning atkvæða stendur nú yfir í Simbabve, en íbúar landsins kusu bæði til þings og forseta í gær. Kosningarnar fóru friðsamlega fram og kjörsókn var góð, en þrátt fyrir að eftirlitsmenn frá Afríkusambandinu gerðu engar athugasemdir við framkvæmd kosninganna töldu ýmsir frambjóðendur að átt hafi verið við kjörskrár. Niðurstaðna er að vænta innan fimm daga. Allra augu beinast að slagnum um forsetaembættið milli erkifjendanna Roberts Mugabe, sitjandi forseta, og Morgans Tsvangirai forsætisráðherra. Mugabe hefur setið við stjórnvölinn frá árinu 1980, eftir að hvíti minnihlutinn var hrakinn frá völdum, en valdatíð hans og Zanu-flokksins hefur einkennst af ofbeldi, kúgun, spillingu og efnahagslegri óráðsíu. Mugabe er 89 ára gamall, en ekki reiðubúinn til að láta af völdum fyrr en í fulla hnefana. Morgan Tsvangirai var um árabil einn helsti leiðtogi stjórnarandstöðunnar í landinu og mátti þola margvíslega áþján vegna þess. Meðal annars var honum oft og iðulega varpað í fangelsi fyrir litlar eða engar sakir, þar sem hann sætti ofbeldi. Eftir sigur Tsvangirais í síðustu þingkosningum árið 2008 neyddist Mugabe til að mynda ríkisstjórn með honum, sem hefur haldið, þrátt fyrir að enn skerist í odda þeirra á milli. Fjölmiðlar hliðhollir Mugabe hafa hamrað linnulaust á Tsvangirai og bendlað hann við ýmis hneykslismál, en einnig hefur hann mátt þola gagnrýni innan sinna eigin raða fyrir að hafa látið völdin stíga sér til höfuðs. Efnahagslíf Simbabve var rjúkandi rúst á fyrstu árunum upp úr aldamótum en undir stjórn Tsvangirais hefur landið náð að rétta nokkuð úr kútnum upp á síðkastið. Forsetaframbjóðendurnir hafa gjörólíka sín á framhaldið í efnahagsmálum þar sem Tsvangirai vill örva erlenda fjárfestingu í landinu, en Mugabe hefur lýst því yfir að hann hyggist þjóðnýta á annað þúsund fyrirtæki í erlendri eigu sem starfrækt eru í Simbabve.
Mest lesið Viðar Örn gaf Sævari Louis Vuitton-tösku Innlent Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Innlent Sundþjálfari KR með hníf á lofti fyrir lykilfund sundfólks Innlent Játar innbrot í búin Innlent Norðmenn kynna „stærstu breytingarnar frá upphafi“ á EES samstarfinu Erlent „Ég þekkti strax höfuðið á henni úr fjarska“ Innlent „Er þetta ekki komið út í hártoganir?“ Innlent KR-ingar harma sundátökin: „Mikilvægt að við hlúum hvert að öðru“ Innlent Lífsnauðsynlegt að meðhöndla risarækjur líkt og kjúkling Innlent Þurftu að keyra á hnífamann sem slóst við lögreglu Innlent Fleiri fréttir Bandaríkin hafi samið við Danmörku um Grænland Íhuga að fara nýja leið og bjóða Rússum viðskiptasamninga Trump rekur CNN og fleiri fjölmiðla úr Hvíta húsinu Andersson fær stjórnarmyndunarumboðið Hákarl banaði sundmanni Segir „íslamista“ skýra velgengni vinstrimanna Danskar F-35 lentu á Grænlandi í fyrsta sinn Kínverjar leituðu til Írana fyrir hönd Sáda Norðmenn kynna „stærstu breytingarnar frá upphafi“ á EES samstarfinu Segir Karl hafa hljómað himinlifandi eftir dauða Díönu Slapp við fangelsisvist eftir að hafa notað maura í matargerð Rússar kjósa sér 450 skoðanabræður Rússar hafi skipulagt fjölþáttaárás gegn Póllandi Vill fara með Svíþjóð í nýja átt Telja Bandaríkjamenn kunna að hafa framið stríðsglæpi í Íran Kristersson sagði af sér eftir að öll atkvæði voru talin „Þetta snýst um fullveldi“ Þvertaka fyrir að Karl hafi sagt að Díana myndi gleymast fljótt Sænskur stórglæpon handsamaður í Marokkó Samþykktu frumvarp Grahams einu og hálfu ári seinna Hótar háum tollum og að hætta viðskiptum við ESB Varði breytingar á reglum um ráðningar og dýraníð Krefst þess með hástöfum að stýrivextir verði lækkaðir Nær hundrað prósent líkur á sigri vinstri blokkarinnar Kostaði 57 milljarða að verjast einni árás Hútar skutu niður herþotu Sáda Ný réttarhöld gætu reynst flókin í framkvæmd Afhjúpa RIS-vanda í Evrópu og Bandaríkjunum Býður Kanada aukaaðild að Evrópusambandinu Fréttaþyrla NBC hrapaði í Los Angeles Sjá meira