Erlent

Málaði yfir vegglistaverk og endaði sjálfur á veggnum

Haukur Viðar Alfreðsson skrifar
DS ákvað tók ljósmyndir af manninum sem málaði yfir verkið og notaði hann svo sem fyrirmynd að næsta verki.
DS ákvað tók ljósmyndir af manninum sem málaði yfir verkið og notaði hann svo sem fyrirmynd að næsta verki.
Borgarstarfsmaður í Lundúnum var fenginn til að mála yfir vegglistaverk sem málað hafði verið á vegg á EsseX Road. Grunlaus um að veggjalistamaðurinn væri að taka ljósmyndir af honum kláraði hann verkið, en skömmu síðar var nýtt listaverk komið á vegginn, mynd af borgarstarfsmanninum.

Maðurinn á bak við listaverkið kallar sig „DS“ og er 28 ára Lundúnarbúi. „Viðbrögð mín við því að það hefði verið málað yfir verkið voru öðruvísi en vanalega,“ segir „DS“ í samtali við Daily Mail, og bætir því við að hann sé orðinn vanur því að málað sé yfir verkin hans. „En í þetta sinn fékk það bara að vera í friði í átta klukkustundir.“

Hann ákvað því að taka ljósmyndir af manninum sem málaði yfir verkið og nota hann sem fyrirmynd að næsta verki. „Ég renndi í gegnum myndirnar og sá eina frábæra af manninum sem málaði yfir verkið. Ég vildi því setja hann á sama stað.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×