Erlent

Snjallsímar nýttir til augnlækninga

Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar
Snjallsímar eru nýttir sem augnlæknar í þriðja heiminum.
Snjallsímar eru nýttir sem augnlæknar í þriðja heiminum.
Það var aðeins tímaspursmál hvenær snjallsímar umbreyttust úr því að vera bara samskipta- og leikjatæki. Verið er að hanna nýja viðbót í snjallsíma sem getur skannað augu í þeim tilgangi að mæla sjón og finna augnsjúkdóma.  Þetta kemur fram á vesfíðunni Gizmodo.com.

Viðbótin sem ber nafnið Peek er í þróun hjá London School of Hygiene and Tropical Medicine í samstarfi við aðrar heilbrigðisstofnanir. Vonir standa til að hægt sé að nýta þessa tækni í þriðja heiminum og hefur viðbótin þegar verið prófuð á um fimm þúsund manns í Kenía.

Tæknina á að nýta fyrir fólk sem annars hefði ekki aðgang að augnlæknum og viðbótin þykir komast ansi nærri að veita sömu þjónustu og læknar gera.

Viðbótin nýtir sér myndavélina í snjallsímum til þess að skanna augað og flassið til að skanna á bak við augað og finna út virkni þess. Viðbótin nýtir sér einnig tækni til að minnka stafi svo hægt sé að gera augnpróf lík þeim sem fólk þekkir hjá augnlæknum og gleraugnaverslunum. 

Varan er enn í þróun en hún lofar góðu. Alþjóðasamtök sem berjast fyrir því að koma í veg fyrir blindu, lofa þessa nýju viðbót.

Undanfarið hafa komið út viðbætur á snjallsíma geta skannað líkamann fyrir húðkrabbameini, fylgst með hjartsláttartíðni og skoðað eyrnasýkingar.

Star Trek aðdáendur kannast eflaust við svipaða tækni úr þáttunum.

Á vefsíðunni Gizmodo.com er fólk þó minnt á að viðbótin kemur alls ekki í stað fyrir lækna, þó hún geti gert margt sem þeir gera. Snjallsíminn getur ekki orðið læknir. En á mörgum stöðum í heiminum, þar sem fólk hefur ekki aðgang að læknum alla jafna, getur þetta orðið það næst besta.

Hægt er að skrá sig hjá hjá þróunarteyminu til þess að fá að prófa nýju viðbótina. Fyrir þá sem eru mjög áhugasamir, er eflaust hægt að fá að vera með í hópi þeirra sem koma til með að sýna heiminum viðbótina, Peek.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×