Erlent

Eldgos í Rokatenda á Indónesíu

Rokatenda spýr ösku
Rokatenda spýr ösku Mynd/AP
Sex manns hafa látið lífið á Indónesíu vegna eldgoss, sem hófst á laugardaginn. Þeir höfðu ekki viljað yfirgefa heimkynni sín þegar stjórnvöld hvöttu til þess á síðasta ári.

Eldgosið í fjallinu Rokatenda hófst á laugardag á eyjunni Palue í austanverðum eyjaklasanum.

Þúsundir manna hafa verið fluttir burt síðan á laugardag, en þeir sem létust voru á slóðum sem strax á síðasta ári þóttu varhugaverðar, eftir að jarðskjálftavirkni tók að aukast og merki um yfirvofandi eldgos urðu æ sterkari.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×