Erlent

26 palestínskum föngum sleppt í vikunni

Þorgils Jónsson skrifar
Ísrael og Palestínumenn munu setjast að samningaborði á miðvikudaginn í fyrsta sinn í fimm ár.
Ísrael og Palestínumenn munu setjast að samningaborði á miðvikudaginn í fyrsta sinn í fimm ár. Mynd/AP
Ísraelsstjórn mun sleppa 26 palestínskum föngum úr haldi í vikunni. Þetta er hluti af samkomulagi milli Ísraels og Palestínu um áframhald friðarviðræðna, en fyrsti fundurinn þar í millum í fimm ár fer fram á miðvikudaginn.

Fangarnir hafa flestir verið um langa hríð á bak við lás og slá, sumir í hátt í þrjátíu ár. Alls voru 21 þeirra dæmdir vegna þátttöku í banvænum árásum, en fimm voru dæmdir fyrir mannrán eða tilraunir til manndráps. Helmingur þeirra afplánaði lífstíðardóma, en hinir máttu eiga von á því að sleppa innan nokkurra ára.

Þessi tíðindi hafa fengið blendnar viðtökur beggja vegna borðsins. Annars vegar finnst mörgum aðstandendum fórnarlamba Palestínumanna Ísrael hafa með þessu gengið of langt til að komast að samningaborðinu. Hins vegar finnst Palestínumönnum sem umræddum föngum hefði átt að sleppa fyrir löngu síðar, þar sem þeir hafi framið brot sín áður en fyrst var samið um frið milli Palestínumanna og Ísraels árið 1994.

Lausn fanganna, og um 80 til viðbótar, er hluti af samkomulagi milli Ísraels og Palestínu um að setjast aftur að samningaborðinu, en á móti féllu Palestínumenn frá því skilyrði sínu að nýbyggingar Ísraela á hernumdum svæðum yrðu stöðvaðar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×