Erlent

Velur sér hófsama ráðherra

Guðsteinn Bjarnason skrifar
Hassan Rúhani.
Hassan Rúhani. Mynd/AP
Hassan Rúhaní, nýr forseti Írans, sætti í dag gagnrýni á þjóðþingi landsins fyrir að hafa tilnefnt hófsemdarmenn og stjórnarandstæðinga í 18 ráðherrastöður væntanlegrar ríkisstjórnar.

Rúhaní segist ætla að leggja áherslu á að bæta samskiptin við umheiminn, en forveri hans í starfi, Mahmúd Ahmadínedjad, hafði greinilega gaman af að ganga fram af leiðtogum á Vesturlöndum með stóryrtum yfirlýsingum.

Þingið þarf að samþykkja ráðherralistann, og greiðir atkvæði um hvern þeirra. Búist er við því að þeim atkvæðagreiðslum verði lokið á miðvikudag.

Rúhaní vann stórsigur í forsetakosningum í júní og sór embættiseið sinn þann 4. ágúst. 








Fleiri fréttir

Sjá meira


×