Erlent

Hollenskur prins fellur frá

Johann Friso hefur legið í dauðadái síðan á síðasta ári.
Johann Friso hefur legið í dauðadái síðan á síðasta ári. MYND/AFP
Jóhann Friso, næstelsti sonur Beatrix prinsessu, fyrrverandi Hollandsdrottningu, bróðir Vilhjálms Alexanders Hollandskonungs, lést í dag 44 ára að aldri.

Jóhann lenti í snjóflóði í Austurríki á síðasta ári en hann hafði verið skíðafríi ásamt konungsfjölskyldunni. Hann hafði legið í dauðadái síðan þá. Jóhann skilur eftir eiginkonu, prinsessuna Mabel af Nassau, og tvö börn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×