Erlent

„Ég finn engin orð til að lýsa tilfinningum mínum“

Skólafélagar þeirra Semone Adkins og Trazjuan "Bubba“ Hunter völdu þau herra og ungfrú skóla síns á dögunum en þau eru bæði með Down Syndrome.
Skólafélagar þeirra Semone Adkins og Trazjuan "Bubba“ Hunter völdu þau herra og ungfrú skóla síns á dögunum en þau eru bæði með Down Syndrome.
Skólafélagar þeirra Semone Adkins og Trazjuan „Bubba“ Hunter völdu þau herra og ungfrú skóla síns á dögunum en þau eru bæði með Down Syndrome.

Þetta er í fyrsta skiptið í sögu Flórída-ríkis sem par með heilkennið hlýtur þessa útnefningu.

Það var farið alla leið þegar tilkynnt var um sigurvegarana. Bubba kom akandi á svörtum Maserati og Adkins á rauðum Ferrari. Skólafélagar þeirra stóðu upp úr sætum sínum og klöppuðu fyrir þeim.

„Ég er svo glöð. Ég finn engin orð til að lýsa tilfinningum mínum. Ég er svo stolt af honum,“ sagði Janice Morgan móðir Bubba við WTEV sjónvarpsstöðina.

Horfa má á fréttina hér að neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×