Erlent

Fitow gerir Kínverjum lífið leitt

Gunnar Valþórsson skrifar
Vindhviðurnar ná allt að 151 metra á sekúndu og gríðarmikil rigning fylgir með.
Vindhviðurnar ná allt að 151 metra á sekúndu og gríðarmikil rigning fylgir með.
Hæsta viðbúnaðarstig er nú í gildi í austurhluta Kína eftir að öflugur fellibylur sem kallaður er Fitow gekk þar á land í morgun.

Vindhviðurnar ná allt að 151 metra á sekúndu og gríðarmikil rigning fylgir með. Að minnsta kosti tveir hafa látið lífið og er viðbrögðum stjórnvalda þakkað að ekki hefur farið verr, en tæplega áttahundruð þúsund manns var fyrirskipað að yfirgefa heimili sín við ströndina. Þá var skipstjórum á sextíu og fimm þúsund fiskibátum sagt að halda bátum sínum við bryggjur.

Rigningarnar hafa valdið víðtæku rafmagnsleysi og eru samgöngur víða gengnar úr skorðum, til dæmis eru háhraðalestir á svæðinu hættar að ganga og flugferðum hefur víða verið aflýst. Fitow er 23 fellibylurinn sem skellur á ströndum Kína á þessu ári, en fyrir nokkrum vikum fórust 25 þegar fellibylurinn Usagi gekk á landi í sunnanverðu Kína.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×