Draga grænmetisát Neanderdalsmanna í efa Brjánn Jónasson skrifar 21. október 2013 12:51 Draga má í efa að agnir sem þóttu benda til þess að Neanderdalsmenn borðuðu grænmeti færi nokkrar sönnur á það samkvæmt nýrri rannsókn. nordicphotos/afp
Ekki er víst að Neanderdalsmenn hafi lifað jafn heilsusamlegu lífi og vísindamenn hafa gert skóna, og ástæða til að efast um að þeir hafi borðað grænmeti að nokkru ráði segja vísindamenn við breska náttúruvísindasafnið í London. Vísindamenn hafa hingað til gengið út frá því að grænmetisagnir sem fundist hafa á tönnum þessara fornmanna sýni fram á að þeir hafi borðað grænmeti. Neanderdalsmenn komu fram fyrir 200 þúsund árum og dóu út fyrir um 28 þúsund árum. Ný rannsókn, sem vitnað er til í breska blaðinu Guardian, sýnir að Neanderdalsmenn gætu allt eins hafa borðað innihald maga dýranna sem þeir veiddu sér til matar. Þekkt er að innihald maga grasbíta þótti sérstakt góðgæti meðal inúíta og annarra frumbyggjar Ameríku. Innihald magans er góð uppspretta C-vítamíns og ýmissa snefilefna. Bragðið og áferðin eru sögð minna á rjómaost, þó vísindamennirnir sem unnu rannsóknina hafi ekki smakkað til að sannreyna þá staðreynd. „Mistökin sem vísindamenn virðast hafa gert er að gefa sér að það að plöntuleifar hafi fundist á tönnum þýði það að þær hafi komist þangað þegar kjötætur - í þessu tilviki Neanderdalsmenn - hafi borðað plönturnar af ásettu ráði til að bæta heilsu sína,“ segir Laura Buck, einn vísindamannanna, við Guardian. „Staðreyndin er sú að þessar agnir gætu hafa komist á tennurnar eingöngu vegna þess að Neanderdalsmönnum hafi þótt innihald maga sumra þeirra dýra sem þeir veiddu lostæti,“ segir Buck.
Mest lesið „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Innlent „Áfall fyrir starfsfólk“ Innlent Aðstoðarskólastjóri Stapaskóla biður nærsamfélagið um hjálp Innlent Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent Stóra aðgerðin valdi titringi á fíkniefnamarkaði Innlent Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Innlent Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent Skálmöld stígur ölduna í héraðsdómi Innlent Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Innlent Fleiri fréttir Boðar tíu daga vopnahlé milli Ísraels og Líbanon Páfinn skaut föstum skotum að harðstjórum Íranir geti valið auðveldu leiðina eða þá erfiðu Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Viðræður sagðar standa yfir en ekkert fast í hendi Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Gríðarleg vonbrigði meðal kennara með orð Ingu Sæland í morgun Flóttamenn drukknuðu þegar yfirfullum togara hvolfdi Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Sjá meira