Erlent

Lítill svefn veldur eirðarleysi

Ingibjörg Bára Sveinsdóttir skrifar
Börn geta fengið sams konar einkenni og ADHD veldur  sofi þau of lítið.
Börn geta fengið sams konar einkenni og ADHD veldur sofi þau of lítið. nordicphotos/getty
Börn sem sofa of lítið geta fengið sams konar einkenni og börn sem eru með athyglisbrest og ofvirkni eða ADHD. Þetta eru niðurstöður rannsókna barnageðlæknisins Allans Hvolby á svefntruflunum, að því er greint er frá í frétt á vef Politiken.

Læknirinn komst að því að heilbrigð dönsk börn sofa að meðaltali einni klukkustund of lítið á sólarhring. Sofi þau of lítið um langt skeið fá þau sams konar einkenni og börn með ADHD.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×