Erlent

Hætta er talin á aurskriðum

Óli Kristján Ármannsson skrifar
Maður veður flóðvatn í Verakrúz í Mexíkó. Þar hafa heilu hverfin verið rýmd.
Maður veður flóðvatn í Verakrúz í Mexíkó. Þar hafa heilu hverfin verið rýmd. Fréttablaðið/AP
Hitabeltisstormurinn Manúel olli flóðum í Verakrúz í Mexíkó í gær. Þar hafa um 5.000 þurft að yfirgefa heimili sín þar sem búist er við að fellibylurinn Ingiríður bresti á í dag.

Komið hefur verið upp neyðarskýlum og mikil hætta er talin á frekari flóðum og aurskriðum á svæðinu. Manúel og Ingiríður hafa víða sett úr skorðum þjóðhátíðardagskrá sem átti að vera í gær og í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×