Breska þingið neitar að samþykkja hernað Guðsteinn Bjarnason skrifar 30. ágúst 2013 12:00 Hópur fólks stóð fyrir utan breska þinghúsið í gær meðan þingmenn ræddu hernað gegn Sýrlandi. fréttablaðið/AP
Breska þingið hafnaði í gærkvöld tillögu David Camerons forsætisráðherra um hernaðaraðgerðir gegn Sýrlandsstjórn. Cameron lagði mikla áherslu á það í gær að þingið samþykkti að heimila breska hernum að taka þátt í hernaðaraðgerðum og lagði fram rökstuðning fyrir því að Bretar gætu gert þetta án umboðs frá öryggisráðherra Sameinuðu þjóðanna, jafnvel þótt ekki lægi fyrir óyggjandi staðfesting þess að Sýrlandsstjórn bæri ábyrgð á efnavopnaárásinni í síðustu viku. Þetta mættu Bretar og önnur ríki gera ef árásir eru einungis gerðar í „mannúðarskyni“, það er að segja með það eitt í huga að koma í veg fyrir að sýrlensk stjórnvöld verði fleiri almennum borgurum að bana. Tillaga Camerons mætti hins vegar töluverðri mótstöðu í þinginu, einkum meðal stjórnarandstæðinga en einnig meðal allmargra liðsmanna Camerons úr Íhaldsflokknum. Þingmenn bentu óspart á sambærilegar aðstæður árið 2003 þegar breska stjórnin fékk þingið til að samþykkja hernað í Írak á ófullnægjandi forsendum. Sérfræðingar frá Sameinuðu þjóðunum hafa undanfarna daga verið að rannsaka vettvang árásanna, en búist er við að rannsókn þeirra ljúki á næstu dögum. Ban Ki-moon, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, segist reikna með að fá skýrslu með niðurstöðum rannsóknarteymisins strax á laugardaginn.
Mest lesið Skilti sem átti að fæla burt ferðamenn hefur öfug áhrif Innlent Prófessor sakaður um ritstuld fannst látinn Erlent Sögusagnir farið af stað þegar hann sást á fundinum Innlent Gerir aðra atlögu að Lagarfljóti um helgina Innlent „Við hefðum viljað samráð frekar en samtal“ Innlent Önnur lestin af sporinu á innan við sólarhring Erlent „Klukkan tifar“ Innlent Íbúar flúðu undan tónlistarhátíð Bjarkar Innlent Bændur í baráttuhug á leið í herferð um landið Innlent Flaggskip kólumbíska sjóhersins býður almenningi um borð Innlent Fleiri fréttir Prófessor sakaður um ritstuld fannst látinn Önnur lestin af sporinu á innan við sólarhring Mangione játar sök: „Ég skaut herra Thompson og hann lést“ Biður hæstarétt um grænt ljós á veislusalinn „Óumflýjanlegt“ að sjúkdómar blossi aftur upp vegna aðgerða Bandaríkjanna Í basli með að finna nýjan sendiherra í Washington DC Trump skipar sjóhernum að notast aftur við gufu Gróður brennur beggja vegna Ermarsunds Sektaður fyrir að nota þokulúður til að vekja ísbjörn Búa sig undir annað áhlaup á Ceuta Fara fjallabaksleið til að koma nafni Trump á Kennedy-miðstöðina Farage sigraði en Ruslatunnufés greifi hlaut fjórðung atkvæða Komu í veg fyrir launmorð á Bandaríkjamanni í Varsjá Hafa áhyggjur af geðheilsu þúsunda sjóliða Úkraínumenn gáfu Kananum á baukinn Mangione sagður ætla að játa Mannskæð sprenging í stærstu höfn Evrópu Sagður hafa setið fyrir foreldrum sínum áður en hann myrti þau Senda inn liðsauka þar sem landtökumenn sitja um heimili Palestínumanna Handtóku og ákærðu baráttukonu gegn Kú Klúx Klan Stefna Trump vegna sölu á samfélagsmiðlafærslum hans Olíuborunum á Grænlandi frestað eftir viðræður við stjórnvöld Leavitt hættir hjá Trump ICE-liðar fá rafmagnshanska Létu sprengjum rigna á rússneska flotastöð við Svartahaf Ófrjósemi: Gervigreindin notuð til að finna sáðfrumur í geldsæði Farage etur kappi við grínara og aðra furðufugla Blaðamenn og aðrir farþegar notaðir sem tálbeita? Þúsunda saknað og tíminn að renna út Stríðsfangar barðir og beittir kynferðislegu ofbeldi Sjá meira