Erlent

Skógareldar í Kaliforníu

Glímt við eldana Slökkvistörf hafa gengið erfiðlega.
	fréttablaðið/AP
Glímt við eldana Slökkvistörf hafa gengið erfiðlega. fréttablaðið/AP
Skógareldar hafa geisað í fjalllendi í sunnanverðri Kaliforníu og versnaði ástandið verulega í gær.

Allt að 600 heimili eru í hættu og um 1.500 manns hafa þurft að yfirgefa heimili sín og leita skjóls annars staðar.



Á annan tug bygginga voru þegar orðnar eldinum að bráð. Slökkvistörf hafa gengið treglega: „Því miður hefur stærð eldanna sigrast á öllu því sem okkur hefur orðið ágengt,“ sagði Daniel Belant, talsmaður slökkviliðsins í Los Angeles.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×