Vilja komast inn á innri markað ESB Þorgils Jónsson skrifar 9. ágúst 2013 10:00 Kaj Leo Holm Johannesen, lögmaður Færeyja, segist stefna að því að ræða við ESB um þátttöku í innri markaði sambandsins þegar deilan um síldveiðar leysist. Mynd/norden.org
Stjórnvöld í Færeyjum stefna að því að verða hluti af innri markaði ESB. Markmiðið er að geta notið þeirra möguleika sem sterkt markaðssvæði, eins og ESB, býður upp á. Politiken sagði frá þessu í gær. Færeyjar eru í ríkjasambandi við Danmörku, sem er aðildarríki ESB, en standa utan sambandsins. Samskipti milli Færeyja og ESB hafa verið stirð að undanförnu, sérstaklega eftir að aðildarríkin samþykktu á dögunum að beita refsiaðgerðum gegn Færeyingum vegna deilna um veiðar úr norsk-íslenska síldarstofninum. „Þegar við höfum leyst síldarmálið förum við beint inn í viðræður við ESB um að ná fram nýjum samningi,“ segir Kaj Leo Holm Johannesen, lögmaður Færeyja, í samtali við Politiken. Holm Johannesen bætir því við að hann hafi rætt málið við Helle Thorning-Schmidt, forsætisráðherra Danmerkur, sem er að hans sögn „jákvæð og fylgjandi þessum hugmyndum“. Ráðuneyti Holm Johannesens mun sjá um viðræðurnar ásamt danska utanríkisráðuneytinu en tilbúinn samning þarf ekki að bera undir færeysku þjóðina í þjóðaratkvæðagreiðslu.
Mest lesið „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Innlent Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Erlent Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi Innlent Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Erlent Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Innlent Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Erlent Hætta að styrkja Feneyjartvíæringinn vegna þátttöku Rússa Erlent Ingó veðurguð hefur fengið meira en nóg Innlent Greinir frá nauðgun eftir sýningu í Þjóðleikhúsinu Innlent Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Innlent Fleiri fréttir Vilja senda afganska bandamenn og fjölskyldur til Kongó Hætta að styrkja Feneyjartvíæringinn vegna þátttöku Rússa Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Framlengir vopnahléið og herkvína Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Viðræður enn á ís vegna „óásættanlegrar“ hegðunar Ein hinsta ósk Frans páfa enn óuppfyllt „Jæja, herra Heuermann. Mér skilst að þú hyggist játa fyrir mér þessi morð?“ Starmer vissi ekkert en þrýstingurinn mikill að gefa Mandelson grænt ljós Skaut ferðamann til bana við mexíkóskan pýramída Friðurinn úti á morgun en ekkert ákveðið um viðræður Óttast enn stærri skjálfta í Japan á næstu dögum Vilja festa símabannið í lög Vill þrjátíu milljarða vegna fyllerísfréttar D4vid ákærður fyrir að myrða táningsstúlku Utankjörfundur fer vel af stað og fylgið að setjast Stór skálfti í Japan og flóðbylgjuviðvörun gefin út Bandamaður Rússa vann stórsigur í Búlgaríu Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Starmer á leið á átakafund í þinginu Stjórnvöld í Tehran sögð orðin afhuga samningaviðræðum Barist á hafi úti Átta börn látin eftir skotárás „Það er kominn tími til að binda endi á drápsvél Íran“ Klukkan tifar og enn langt í land Að minnsta kosti sex látnir eftir gíslatöku í matvöruverslun Gámaskip Samskipa bilaði við Færeyjar Trump segir Írani krúttlega og þeir geti ekki kúgað Bandaríkin Fimm látnir eftir skotárás í Kænugarði Sjá meira