Erlent

Hershöfðingi dæmdur í ævilangt fangelsi

Sara McMahon skrifar
Tayyip Erdogan, forsætisráðherra Tyrklands.
Tayyip Erdogan, forsætisráðherra Tyrklands. Nordicphotos/AP
Tyrkneskur hershöfðingi, Ilker Basbug, var dæmdur í ævilangt fangelsi á sunnudag. Basbug var í hópi tólf einstaklinga sem fundnir voru sekir um að hafa lagt á ráðin um að steypa ríkisstjórn Recep Tayyip Erdogan, forsætisráðherra Tyrklands, af stóli.

Á þriðja hundrað manns voru ákærðir í málinu og stóðu réttarhöldin yfir í fimm ár. Í hópi ákærðu voru hermenn, lögfræðingar, rithöfundar og blaðamenn.

Andstæðingar Erdogans hafa sakað hann um að setja réttarhöldin á svið í þeim tilgangi að losa sig við andstæðinga sína.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×