Erlent

Hundruð loftbelgja á lofti í einu

Loftbelgjakraðak í Frakklandi.
Loftbelgjakraðak í Frakklandi. nordciphotos/AFP
Í Chambley á austanverðu Frakklandi, þar sem NATO hafði herstöð í eina tíð, svifu í gær hvorki meira né minna en 408 loftbelgir til himna.

Þetta gerðist á árlegri samkomu áhugafólks um loftbelgi, sem jafnan er haldin í Frakklandi. Með þessu var fellt metið frá 2009 þegar 329 loftbelgir svifu til lofts samtímis.

Allt gekk þetta stórslysalaust fyrir sig og öllum tókst að lenda sínum belg.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×