Fleiri óbreyttir falla í Afganistan Þorgils Jónsson skrifar 31. júlí 2013 02:00 Alls létu 1.319 óbreyttir borgarar lífið í átökunum í Afganistan á fyrri helmingi þessa árs, að því er fram kemur í nýtti skýrslu Sameinuðu þjóðanna. Sérstök athygli er vakin á því að konur og börn urðu enn frekar fyrir barðinu á stríðandi öflum en á sama tíma í fyrra. Mynd/AP
Alls létu 1.319 óbreyttir borgarar lífið í átökunum í Afganistan á fyrri helmingi þessa árs. Það er 161 fleiri en var á sama tíma í fyrra, sem nemur um fjórtán prósenta fjölgun. Þá fjölgaði særðum um rúman fjórðung, úr tæplega 2.000 upp í rúmlega 2.500. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Sameinuðu þjóðanna, en alda ofbeldis sem hefur gegnið yfir landið að undanförnu eykur á efasemdir um að afganskar öryggissveitir muni koma til með að ráða við ástandið eftir að erlent herlið yfirgefur landið fyrir lok næsta árs. Vopnaðir hópar stjórnarandstæðinga hafa stóraukið umsvif sín í landinu það sem af er ári. Langstærstur hluti fallinna og særðra, eða um tveir þriðju, er rakinn til aðgerða uppreisnarhópa sem hafa notað sprengjuárásir í enn frekara mæli en áður. 146 létust í aðgerðum stjórnarliða og bandamanna þeirra. Flestir vegna bardaga á jörðu niðri eða loftárása. Skýrsluhöfundar vekja einnig athygli á þeim fjölda kvenna og barna sem hafa orðið fyrir barðinu á óöldinni sem ríkir víða í landinu. 106 konur og 231 barn féllu frá ársbyrjun til júníloka, en á sama tíma í fyrra létust 76 konur og 232 börn. Talið er að yfir 20.000 óbreyttir afganskir borgarar hafi látið lífið í stríðsátökum og skærum í landinu frá innrás fjölþjóðaliðs undir forystu Bandaríkjanna haustið 2001. Þá eru 574.000 Afganar eru á vergangi innanlands eftir að hafa hrakist frá heimilum sínum og enn fleiri hafa flúið land.
Mest lesið Flugmennirnir sviptir flugréttindum Innlent Skúli fagnar með „sannleikann að vopni“ Innlent „Fólk bara skammast sín svo rosalega mikið“ Innlent Segir sama starfið nú auglýst að nýju:„Pínu sárt að horfa upp á þetta“ Innlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Eftirlitsmenn Strætó báðu um að fá að klæðast stunguvestum Innlent Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent Fari mjög líklega aftur í „Ég sagði það“-frakkann næsta vor Innlent Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Innlent Fleiri fréttir Minnst tólf létust í árásum Ísraelshers Handtakan þyrfti að byggja á alþjóðalögum Widdecombe slegin með hamri tuttugu og einu sinni Hútar hóta Sádum og ráðist á Íran tíundu nóttina í röð Fundar með fjölda herforingja í skugga mótmæla Ortega segir engar frekari kosningar verða haldnar í Níkaragva Varnarmálaráðherrann verður fjármálaráðherra og Miliband utanríkisráðherra Ákærður fyrir morðið á Widdecombe Tíu látnir eftir árásir Rússa á flutningaskip Skoða að auka umfang árása enn frekar Vill færa Bretum von á nýjan leik Auka þrýstinginn á Taívan verulega Ekkert lát á útbreiðslu ebólu í Austur-Kongó „Konungur norðursins“ sjöundi forsætisráðherrann á áratug Usha og JD Vance eignast sitt fjórða barn Hóta því að hleypa ekki einasta dropa af olíu eða gasi um sundið Fleiri en hundrað um borð í ferju sem hvolfdi Mamdani skoðar að láta handtaka Netanjahú Níu nauðgunarákærur bætast við langan lista Mörg hundruð manns hafa misst heimili sín í stórbrunanum í Noregi Háskólinn á Grænlandi fer ekki í samstarf við Bandaríkjamenn Ekki lengur ákærður fyrir tilraun til manndráps Búið að ráða niðurlögum eldsins Tate-bræður teknir fastir í Miami Tveir bandarískir hermenn látnir eftir árásir Írans Forseti Ungverjalands segir af sér Þriðja hitabylgjan nálgast: Hiti gæti náð 45 gráðum á Spáni Skógræktarstarfsmönnum haldið í gíslingu í hjólhýsi Fjölskyldur kvennanna í sárum eftir nýjar fréttir Maður fluttur með sjúkraflugi undir læknishendur eftir hákarlaárás Sjá meira