Áframhald ofbeldisverka í Írak Þorgils Jónsson skrifar 31. ágúst 2013 10:00 Um 3.000 manns hafa látið lífið í hermdarverkum milli trúarhópa í Írak síðustu fjóra mánuði. Mynd/AP
Ofbeldisaldan heldur enn áfram í Írak þar sem átján manns létust í árásum í morgun og gærkvöldi. Annars vegar æddu byssumenn um götur í hverfi sjíta í höfuðborginni Bagdad og skutu fólk af handahófi með þeim afleiðingum að fimm létust og níu særðust. Tveir sjítar til viðbótar létust í álíka árás í úthverfi borgarinnar. Þá voru gerðar sprengjuárásir bæði á moskur sjíta og súnníta í gærkvöldi. Þar sem sjö sjítar féllu í höfuðborginni og fjórir súnnítar í bænum Tuz Khormato í norðurhluta landsins. Gríðarlegt mannfall hefur verið vegna ofbeldis í Írak síðustu mánuði, en um 3.000 manns hafa fallið í valinn frá því í apríl. Skemmst er að minnast þess að 58 létust í sprengjuárásum víða um landið í fyrradag. Al-Kaída í Írak sagðist bera ábyrgð á þeim árásum, sem beindust fyrst og fremst að sjítum. Óöldin undanfarið hefur slegið á vonir manna um að ástandið í landinu fari að róast, nú þegar um tvö ár eru síðan bandarískar hersveitir yfirgáfu landið. Er talið að Al-Kaída sé með árásum á sjíta, sem eru meirihluti landsmanna og hafa tögl og hagldir í stjórn landsins, að æsa súnníta til uppreisnar. Eftir innrás Bandaríkjamanna í Írak árið 2003 brutust út mikil átök milli trúarhópa þar sem unnin voru mikil grimmdarverk sem kostuðu fjölda fólks lífið áður en yfir lauk.
Mest lesið „Dreginn inn í umræðu þar sem engar staðreyndir eða neitt liggja fyrir“ Innlent Opnar sig um nauðgun: „Ég hélt náttúrulega þá að ég gæti bara ráðið við þetta“ Innlent Fyrstu vindmyllurnar komnar í Þorlákshöfn Innlent Vill þrjátíu milljarða vegna fyllerísfréttar Erlent Hlegið á þingi: „Ég er ekki hundrað ára“ Innlent Samfylking og Sjálfstæðisflokkur hækka flugið Innlent Reyndi að greiða með ellefu þúsund króna seðli Innlent Vilja festa símabannið í lög Erlent Grunaðir um að táldraga táningsstúlkur Innlent Mandarínönd heillar við Hamarkotslæk Innlent Fleiri fréttir Vilja festa símabannið í lög Vill þrjátíu milljarða vegna fyllerísfréttar D4vid ákærður fyrir að myrða táningsstúlku Utankjörfundur fer vel af stað og fylgið að setjast Stór skálfti í Japan og flóðbylgjuviðvörun gefin út Bandamaður Rússa vann stórsigur í Búlgaríu Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Starmer á leið á átakafund í þinginu Stjórnvöld í Tehran sögð orðin afhuga samningaviðræðum Barist á hafi úti Átta börn látin eftir skotárás „Það er kominn tími til að binda endi á drápsvél Íran“ Klukkan tifar og enn langt í land Að minnsta kosti sex látnir eftir gíslatöku í matvöruverslun Gámaskip Samskipa bilaði við Færeyjar Trump segir Írani krúttlega og þeir geti ekki kúgað Bandaríkin Fimm látnir eftir skotárás í Kænugarði Skotið þrátt fyrir heimild frá hernum: Áhafnir tilkynna árásir á Hormússundi Funduðu með forstjóranum þrátt fyrir lögsókn Hormússundi lokað á ný Bretar og Frakkar ætla að leiða aðgerðir við Hormússund Hormússundið opið á ný Vopnaðir ræningjar héldu 25 í gíslingu í banka á Ítalíu D4vd handtekinn vegna gruns um að hafa banað táningsstúlku Mandelson veitt öryggisheimild þrátt fyrir að hafa fallið á bakgrunnsathugun Brothætt vopnahlé í Líbanon hefur tekið gildi Boðar tíu daga vopnahlé milli Ísraels og Líbanon Páfinn skaut föstum skotum að harðstjórum Íranir geti valið auðveldu leiðina eða þá erfiðu Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Sjá meira