Erlent

Blýkista fannst rétt hjá Ríkharði þriðja

Guðsteinn Bjarnason skrifar
Matthew Morris fornleifafræðingur við uppgröftinn í Leicester.
Matthew Morris fornleifafræðingur við uppgröftinn í Leicester. Nordicphotos/AFP
Undir bílastæði í Leicester, skammt frá þeim stað þar sem beinagrind Ríkharðs þriðja fannst á síðasta ári, hefur fundist steinkista mikil, og innan í þeirri kistu er blýkista.

Þetta þykir fornleifafræðingum óvenjulegt, en ekki er vitað hver grafinn er með þessum hætti.

Óvist er hvort það kemur nokkurn tímann í ljós, en fornleifafræðingar eru farnir að undirbúa það að opna kistuna til að kanna innihaldið. Fara þarf varlega til að ekkert skemmist.

Athygli vekur að líki konungsins var nánast hrúgað niður í holu á meðan svo vel var búið um hinn ókunna í blýkistunni.

Blýkistan er 2,12 metrar að lengd, 60 sentimetra breið við höfðalagið en 30 sentimetrar við fótagaflinn.

Í breskum fjölmiðlum er haft eftir fornleifafræðingnum Matthew Morris, sem stjórnar uppgreftrinum, að ýmis nöfn hafi verið nefnd. Allt eru það höfðingjar á þrettándu eða fjórtándu öld, sem vitað er að grafnir voru þarna í kirkjugarðinum.

Um þetta má meðal annars lesa í The Guardian.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×