Erlent

Grikkir fá næstu útborgun neyðarlána

Þorgils Jónsson skrifar
Almenningur í Grikklandi hefur mótmælt niðurskurðaráætlunum stjórnvalda harðlega.
Almenningur í Grikklandi hefur mótmælt niðurskurðaráætlunum stjórnvalda harðlega. NordicPhotos/AFP
Grikkland hefur nú uppfyllt skilyrði til að fá næstu greiðslu neyðarlána frá ESB og Alþjóðagjaldeyrissjóðnum (AGS) að upphæð 5,8 milljarða evra, sem jafngildir hátt í þúsund milljörðum íslenskra króna.

Gríska þingið samþykkti í gær, eftir margra vikna karp, nýjustu aðgerðir til niðurskurðar og aðhalds í ríkisrekstri, meðal annars afar umdeild áform um að segja upp 4.200 opinberum starfsmönnum fyrir næstu mánaðarmót.

Tæpur helmingur fjárins kemur úr björgunarsjóði evrusvæðisins, 1,5 milljarður evra kemur frá öðrum evruríkjum og 1,8 milljarður frá AGS. Upphæðin verður greidd út eftir að þýska þingið samþykkir lánið á mánudag.

Miklar deilur hafa staðið um niðurskurðaráform Antonis Samaras forsætisráherra, sem lokaði meðal annars á útsendingar ríkissjónvarpsins ERT.

Reuters hefur eftir gríska dagblaðinu Kathimerini að rúmur helminur lánsfjárins muni renna strax aftur til lánveitendanna í formi afborgana af eldri skuldum, meðal annars fari 2,3 milljarðar evra aftur til Seðlabanka Evrópu og seðlabanka aðildarríkja myntbandalagsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×