Erlent

Vændiskaupandi sagðist í tómataleit

Þorgils Jónsson skrifar
Breti sem var sakfelldur fyrir vændiskaup bar því við að vændiskonan hafi verið að sýna honum hvar mætti kaupa tómata.
Breti sem var sakfelldur fyrir vændiskaup bar því við að vændiskonan hafi verið að sýna honum hvar mætti kaupa tómata.
Tæplega fertugur Breti, Muhammad Ikhlaq að nafni, var fyrir skemmstu sakfelldur fyrir vændiskaup og dæmdur til greiðslu sektar. Það sem heyrði til tíðinda í málinu var afsökun Ikhlaqs.

Á fréttavef BBC kemur fram að þegar lögregla kom að máli við manninn var hann á leið aftur í bifreið sína eftir að hafa tekið út pening í hraðbanka á meðan kona ein, sem er lögreglu vel kunnug fyrir vændissstarfsemi, beið í bílnum.

Sagði Ikhlaq að konan hafi einfaldlega verið að sýna honum hvar hægt væri að kaupa tómata.

Peningana hafi hann svo ætlað að nota til þess að borga fyrir tómatana.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×