Erlent

Fiðrildum hefur fækkað um helming í Evrópu

Guðsteinn Bjarnason skrifar
Fækkun fiðrilda þykir vísbending um æ fábreyttari lífsskilyrði.
Fækkun fiðrilda þykir vísbending um æ fábreyttari lífsskilyrði. Nordicphotos/AFP
Undanfarna tvo áratugi hefur fiðrildum fækkað um helming í Evrópuríkjum. Þetta þykir sterk vísbending um að margar tegundir fiðrilda og annarra skordýra í Evrópu verði brátt komnar í útrýmingarhættu.

Þetta kemur fram í nýrri skýrslu frá umhverfisstofnun Evrópusambandsins, EEA.

Í skýrslunni segir að meginorsökina sé að finna í breyttri landnýtingu. Eftir því sem stærra landsvæði er tekið undir landbúnað, þá dregur úr möguleikunum á fjölbreyttu lífríki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×