Erlent

Leita síðustu nasistanna

Guðsteinn Bjarnason skrifar
Efraim Zuroff, forstöðumaður Simon Wiesenthal-stofnunarinnar, við eitt auglýsingaskiltanna í Þýskalandi.
Efraim Zuroff, forstöðumaður Simon Wiesenthal-stofnunarinnar, við eitt auglýsingaskiltanna í Þýskalandi. Mynd/AP
Stofnun Simons Wiesenthal hóf í vikunni auglýsingaherferð í nokkrum helstu borgum Þýskalands þar sem auglýst er eftir síðustu stríðsglæpamönnum nasistastjórnarinnar, sem enn kunna að vera á lífi.

„Seint, en ekki of seint,“ stendur á auglýsingaspjöldunum, þar sem fólk er hvatt til að láta vita hafi grunur vaknað.

„Því miður hafa mjög fáir þeirra sem frömdu glæpina þurft að gjalda fyrir það,“ segir Efraim Zuroff, yfirmaður stofnunarinnar. 

Greiddar verða fimm þúsund evrur fyrir upplýsingar sem leiða til handtöku, aðrar fimm þúsund við sakfellingu og 150 evrur fyrir hvern dag í fangelsi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×